Upptaka til af Trump ræða um leyniskjölin Kjartan Kjartansson skrifar 1. júní 2023 09:09 Upptakan var gerð á fundi á Bedminster-golfvelli Trump í New Jersey í júlí 2021. Myndin er frá öðrum velli Trump í Virginíu fyrir nokkrum dögum. AP/Alex Brandon Bandarískir alríkissaksóknarar hafa komist yfir hljóðupptöku þar sem Donald Trump, fyrrverandi forseti, heyrist ræða um leyniskjöl sem hann hafði með sér úr Hvíta húsinu. Orð Trump á henni benda til þess að hann hafi vitað að leynd ríkti yfir skjölunum, þvet á það sem hann hefur haldið fram opinberlega.
Trump hafði með sér fjölda leynilegra skjala sem tilheyra alríkisstjórninni þegar hann lét af embætti forseta árið 2021. Eftir að opinber rannsókn hófst á því hvort að hann hefði brotið lög hélt hann því fram að hann hefði verið búinn að aflétta leynd af öllum skjölunum. Það hafi hann gert „sjálfkrafa“ með almennri skipun sem hann á að hafa gefið undirsátum sínum. CNN-fréttastöðin greindi frá því í gær að upptaka sem var gerð sumarið 2021 sé í andstöðu við þessar skýringar Trump. Hún gæti verið lykilsönnunargagn í rannsókn Jacks Smith, sérstaks rannsakanda dómsmálaráðuneytisins, á hvort að Trump hafi brotið lög um meðferð leyniskjala og reynt að hindra fulltrúa alríkisstjórnarinnar í að endurheimta þau. Ræddi um skjal um mögulega árás á Íran Á upptökunni heyrist Trump viðurkenna að hafa hangið á leynilegum skjölum frá varnarmálaráðuneytinu um mögulega árás á Íran. Heimildir CNN herma að Trump hafi áttað sig á að skjölin sem hann tók með sér væru enn ríkisleyndarmál. New York Times staðfesti tilvist upptökunnar hjá eigin heimildarmönnum í kjölfarið. Upptakan er sögð hafa verið gerð á fundi í tengslum við ritun æviminninga Marks Meadows, skrifstofustjóra Hvíta hússins undir lok forsetatíðar Trump. Í bókinni lýsir Meadows því að Trump hafi rætt um skýrslu Marks Milley, formanns herforingjaráðs Bandaríkjanna, um árás á Íran. Á fundinum voru tveir menn sem unnu að æviminningum Meadows auk aðstoðarmanna Trump. Engin þeirra hafði öryggisheimild til þess að fá aðgang að leynilegum upplýsingum. Þannig kann Trump að hafa gerst sekur um að ljóstra upp um ríkisleyndarmál. Húsleit var gerð á heimili Trump í Flórída vegna rannsóknarinnar í fyrra. Fram að þessu hafa fundist fleiri en þrjú hundruð skjöl sem voru merkt leynileg í fórum Trump, þar á meðal nokkur sem voru skilgreind sem háleynileg.
Bandaríkin Donald Trump Tengdar fréttir Skoða viðskipti Trump við erlend ríki í samhengi við leyniskjöl Alríkissaksóknarar sem rannsaka leyniskjöl sem Donald Trump hafði með sér þegar hann lét af embætti forseta Bandaríkjanna stefndu fyrirtæki hans um upplýsingar um viðskiptatengsl við sjö erlend ríki. Rannsóknin kann því að beinast að því hvort að Trump hafi nýtt sér skjölin í viðskiptum sínum á erlendri grundu. 23. maí 2023 11:01 Telja Trump hafa hindrað rannsókn á leyniskjölum Bandaríska dómsmálaráðuneytið og alríkislögreglan eru sögð hafa safnað nýjum sönnunargögnum sem benda til þess að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hafi reynt að leggja stein í götu rannsóknar á leyniskjölum sem fundust á heimili hans í fyrra. 3. apríl 2023 15:10 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stöðugt landris og hugað að rýmingu Innlent Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Erlent Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Innlent Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent Fleiri fréttir Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Sjá meira
Skoða viðskipti Trump við erlend ríki í samhengi við leyniskjöl Alríkissaksóknarar sem rannsaka leyniskjöl sem Donald Trump hafði með sér þegar hann lét af embætti forseta Bandaríkjanna stefndu fyrirtæki hans um upplýsingar um viðskiptatengsl við sjö erlend ríki. Rannsóknin kann því að beinast að því hvort að Trump hafi nýtt sér skjölin í viðskiptum sínum á erlendri grundu. 23. maí 2023 11:01
Telja Trump hafa hindrað rannsókn á leyniskjölum Bandaríska dómsmálaráðuneytið og alríkislögreglan eru sögð hafa safnað nýjum sönnunargögnum sem benda til þess að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hafi reynt að leggja stein í götu rannsóknar á leyniskjölum sem fundust á heimili hans í fyrra. 3. apríl 2023 15:10