Íslenski boltinn

Ó­­væntur vin­­skapur kom Nonna til Hamrén í Noregi - „Gaf okkur steik og rautt á kvöldin“

Sverrir Mar Smárason skrifar
Fremur óvæntur vinskapur varð til þess að Jón Aðalsteinn fékk að fylgjast með Hamrén hjá Rosenborg
Fremur óvæntur vinskapur varð til þess að Jón Aðalsteinn fékk að fylgjast með Hamrén hjá Rosenborg Vísir/Samsett mynd

Þjálfarinn Jón Aðal­steinn Kristjáns­son eða „Nonni Coach“ eins og margir þekkja hann hefur lengi þjálfað lið í neðri deildum Ís­lands. Hann mætti til Sverris Mar í hlað­varpið „Ást­ríðan: hetjur neðri deildanna“ á dögunum og ræddi þar sinn feril í þjálfun.

Nonni hefur meðal annars þjálfað KF, Augna­blik, Elliða, Kára, Hamar og Þrótt Vogum á­samt því að eiga tvö tíma­bil sem þjálfari í Bestu deild kvenna, þá hjá Val og Fylki. 

Jón Aðal­steinn hefur í gegnum tíðina verið dug­legur við að afla sér þekkingar og reynslu annarra þjálfara sem annað hvort eiga lengri feril eða þjálfa á hærra getu­stigi. Hann sagði Sverri meðal annars frá því þegar hann heim­sótti Erik Hamrén, þá­verandi þjálfara Rosen­borgar í Noregi, sem síðar varð lands­liðs­þjálfari Ís­lands.

Stemningsmaðurinn Erik HamrénVÍSIR/GETTY

„Talaði ekki um annað en Erik vin sinn“

Það var Haraldur Hróð­mars­son, sem lék undir stjórn Nonna hjá Hamar 2011-2012, sem opnaði þá um­ræðu í þættinum.

„Við fundum það og hann var alveg opinn með það að hann var hringjandi í þjálfara í efstu deild eins og Rúnar Kristins­son og Heimir Guð­jóns­son. Hann var að spyrja þá út í álit á ein­hverjum málum sem hann var að eiga við og að fylgjast með þjálfun á hæsta getu­stigi.

Það var frægt þegar hann fór til Rosen­borgar að hitta Erik Hamrén. Svo kom hann heim og talaði ekki um annað en Erik vin sinn í mánuð,“ sagði Haraldur um fyrrum þjálfara sinn.

Nonni tók undir þessa um­ræðu og út­skýrði betur hvernig að því kom að hann skyldi heim­sækja þennan topp klúbb með topp þjálfara eins og Erik Hamrén.

„Mig skorti á­kveðinn meistara­flokks­feril og ég sá það alveg þannig ég fór til dæmis mikið til Dan­merkur til fé­laga míns sem bjó þar þá og við heim­sóttum marga klúbba þar. Við fórum til Rosen­borgar fyrir til­stuðlan Eyfa sem var for­maður og fram­kvæmda­stjóri Hamars. Erik og Eyfi eru bestu vinir. 

Sú saga hefur aldrei verið sögð í Ís­lenskum fjöl­miðlum að Eyfi, Erik Hamrén og Eiki Hauks söngvari eru perlu­vinir. Hann gerði það að verkum að við fórum til Rosen­borgar og vorum þar í viku.

Rokkguðinn Eiríkur Hauksson

Erik Hamrén var þá búinn að á­kveða að taka við sænska lands­liðinu og var að klára tíma­bilið með Rosen­borg. Við fengum að vera á æfinga­svæðinu með honum á daginn og svo var hann að gefa okkur steik og rautt á kvöldin. Vorum á öllum video fundum og fengum bara rosa­legan að­gang að Rosen­borg, allt fyrir til­stuðlan Eyfa,“ sagði Nonni um sína reynslu og hélt á­fram.

„Varðandi Heimi þá vorum við bara svo­lítið að æfa saman í Hress. Vorum þar í spinning að halda okkur í formi. Með Rúnar fékk ég að fara inn á æfingar til hans og Teits Þórðar í tvær vikur. Til þess bara að fá að sjá og læra hvernig lið í efstu deild voru að gera þetta.

Það er enginn sem hringir í þig, þú verður að hringja sjálfur bara,“ sagði Nonni. 

Nonni bað sömu­leiðis Ás­geir Elías­son heitinn um að fá að fylgjast með æfingum hjá honum en hann tók öðru­vísi á móti honum en aðrir.

„Ég bað líka „Geira El“ heitinn um að fá að fylgjast með æfingum hjá honum þegar ég var hjá Úlfunum á sínum tíma. Hann sagði nei komdu bara og æfðu. Þannig ég æfði bara með Þrótti í hálft tíma­bil, spilaði æfinga­leiki og eitt­hvað fyrir Þróttarana. 

Þeir voru að verða vit­lausir á mér enda ekki nægi­lega góður. Þetta var ekta „Geiri El“ og þú getur í­myndað þér hvað maður lærði þar. Það er verið að gera þetta út um allan heim,“ sagði Jón Aðal­steinn að lokum.

Ást­ríðan – Hetjur neðri deildanna er sem fyrr segir nýtt hlað­varp á Tal sem stýrt er af Sverri Mar Smára­syni sem hefur undan­farin ár stýrt hlað­varpinu Ást­ríðan. Þar hefur Sverrir á­samt fé­lögum sínum Óskari Smára og Gylfa Tryggva­syni fjallað um leiki og lið í 2.- og 3.deild karla í fót­bolta.

Nú ætlar hann í nýrri þátta­röð að taka við­töl við hetjur úr neðri deildunum sem allir hafa heyrt um en fæstir þekkja al­menni­lega sem leik­menn eða þjálfara. Hægt er að hlusta á Hetjur neðri deildanna á öllum helstu hlað­varps­veitum.



Tengdar fréttir

„Tíu ára horfi ég upp á vin minn lenda fyrir bíl“

Víglundur Páll Einarsson, fyrrum knattspyrnumaður, átti langan og farsælan feril í neðri deildum Íslands. Hann sinnti einnig mörgum öðrum hlutverkum en hlutverki leikmanns. Spilandi þjálfari, þjálfari, formaður, stjórnarmaður og framkvæmdastjóri svo eitthvað sé nefnt. 

„Ein al­versta frammi­staða hjá mark­manni sem ég hef orðið vitni að“

Hrafnkell Freyr Ágústsson, oftast þekktur sem Keli í hlaðvarpinu Dr. Football, hefur getið sér gott orð í fótboltaumfjöllun á Íslandi. Færri vita þó að Hrafnkell Freyr átti merkilegan feril sjálfur eins og hlustendur fá að kynnast í nýju hlaðvarpi á Tal, Ástríðan – Hetjur Neðri Deildanna.

„Það stoppaði bíll þarna og þurfti að bíða á meðan 80 naktir menn hlupu“

Ingimar Helgi Finnsson eða litla flugvélin eins og hann er oft þekktur mætti til Sverris Mar í hlaðvarpið „Ástríðan: hetjur neðri deildanna“ á dögunum og ræddi þar sinn feril í neðri deildum Íslands í fótbolta. Eins og gengur og gerist þá eru til ansi margar góðar sögur af liðum í neðri deildum og Ingimar fór yfir eina þeirra þar sem lið Árborgar á það til að fara í nektarhlaup.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×