Harry Kane og Jack Grealish eru í fremstu víglínu hjá enska landsliðinu sem mætir því íslenska í Þjóðadeild UEFA í knattspyrnu á Wembley í London í kvöld.
Jordan Pickford er í markinu með þá Kyle Walker, Harry Maguire og Eric Dier fyrir framan sig.
Á miðsvæðinu eru svo þeir Kieran Trippier, Mason Mount, Declan Rice, Phil Foden og Bukayo Saka.
Fyrri leik liðanna lauk með 1:0-sigri Englands á Laugardalsvelli þar sem Raheem Sterling skoraði sigurmark leiksins en hann er ekki í leikmannahóp enska liðsins í dag.
Team news is in! 🚨
— England (@England) November 18, 2020
Here's how the #ThreeLions line up for tonight's #NationsLeague game against Iceland: pic.twitter.com/K17XYNB4FU