Fjórir reyndust án réttinda fyrir hádegi

Tveir þessara fjögurra voru grunaðir um akstur undir áhrifum.
Tveir þessara fjögurra voru grunaðir um akstur undir áhrifum. mbl.is/Árni Sæberg

Alls reyndust fjórir ökumenn í austurhluta Reykjavíkurborgar án ökuréttinda, þegar þeir voru stöðvaðir á rétt rúmlega þriggja klukkutíma bili fyrir hádegi í dag. Tveir þeirra voru sömuleiðis grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Einn til viðbótar var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, en sá var með tilskilin ökuréttindi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert