Hljóp uppi ungling sem var að gera dyraat

Lögreglustöð.
Lögreglustöð. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um líkamsárás um klukkan korter í tíu í gærkvöldi. 

Þar hafði hópur unglinga verið að gera dyraat og hafði húsráðandi hlaupið uppi einn unglinginn og haldið honum. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 

Engin meiðsl urðu samkvæmt tilkynningu lögreglu og var málið tilkynnt til barnaverndar. 

Tilkynnt var um nokkrar líkamsárásir og slagsmál í nótt. Sömuleiðis voru nokkrar tilkynningar um ölvun og grunsamlegar mannaferðir á borði lögreglu í nótt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert