Erlent

Grunuð um að hafa myrt tvífara sinn

Máni Snær Þorláksson skrifar
Lögreglan í Ingolstadt við rannsókn málsins.
Lögreglan í Ingolstadt við rannsókn málsins. Getty/Peter Kneffel

Lögreglunni í þýsku borginni Ingolstadt var þann 16. ágúst í fyrra tilkynnt um hvarf 23 ára gamallar þýsk-írakskrar konu sem starfar sem áhrifavaldur. Stuttu síðar fannst bíll hennar í Ingolstadt. Í bílnum var lík konu með afmyndað andlit sem hafði verið stungin ítrekað. Foreldrar þýsk-íröksku konunnar töldu að um lík dóttur sinnar væri að ræða.

Það hélt lögreglan líka þar til niðurstöður úr krufningu og DNA-prófum bárust. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að líkið tilheyrði ekki áhrifavaldinum, það var í raun af 23 ára gamalli alsírskri konu sem var sláandi lík jafnöldru sinni sem hafði horfið.

Fannst á lífi og var handtekin

Tveimur dögum eftir að tilkynnt var um hvarf áhrifavaldsins tókst lögreglunni að rekja ferðir hennar til 23 ára karlmanns frá Kósóvó. Þar fannst hún á lífi en bæði hún og maðurinn voru handtekin, grunuð um að hafa orðið alsírsku konunni að bana.

Andreas Aichele, upplýsingafulltrúi lögreglunnar í Ingolstadt, segir lögregluna gruna að þau hafi myrt alsírsku konuna til þess að sviðsetja dauða þeirrar þýsk-íröksku. „Lögreglan telur núna að hin grunaða hafi viljað fara í felur vegna vandamála í fjölskyldunni og að hún hafi þess vegna sviðsett dauða sinn,” er haft eftir Aichele í frétt CNN um málið.

Auglýsti eftir tvífara á samfélagsmiðlum

Samkvæmt Aichele voru þýsk-írakska konan og maðurinn frá Kósóvó með áform um að finna tvífara fyrir konuna á netinu, drepa hana og stilla líki hennar upp með þeim hætti að því yrði ruglað við áhrifavaldinn.

Þýsk-írakska konan auglýsti eftir tvífara fyrir sig á samfélagsmiðlum sínum með loforðum um að tvífarinn fengi svo að hitta sig. Lögreglan í Ingolstadt hefur rætt við nokkrar aðrar konur sem áhrifavaldurinn hafði verið í sambandi við er hún var í leit að rétta tvífaranum.

Áhrifavaldurinn og maðurinn frá Kósóvó sitja nú bæði í fangelsi en hvorugt þeirra hefur verið nafngreint sökum persónuverndarlaga í Þýskalandi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×