Banna þungunarrof eftir frjóvgun Kjartan Kjartansson skrifar 19. maí 2022 18:47 Andstæðingur þungunarrofs með biblíu á lofti við Hæstarétt Bandaríkjanna. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Vísir/EPA Repúblikanar á ríkisþingi Oklahoma í Bandaríkjunum samþykktu frumvarp að ströngustu þungunarrofslögum í landinu í dag. Verði frumvarpið að lögum verður þungunarrof bannað eftir frjóvgun eggs nema í algerum undantekningartilfellum.
Frumvarpið var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta á ríkisþinginu í dag. Sjötíu og þrír þingmenn greiddu atkvæði með því en aðeins sex á móti. Einu undantekningarnar í frumvarpinu eru ef bjarga þarf lífi konu eða ef kona er með barni eftir nauðgun eða sifjaspell sem hefur verið tilkynnt til lögreglu, að sögn AP-fréttastofunnar. Kevin Stitt, ríkisstjóri Oklahoma og repúblikani, hefur gefið til kynna að hann ætli að staðfesta lögin með undirskrift sinni. Hann hefur heitið því að gera Oklahoma að fjandsamlegasta ríki Bandaríkjanna fyrir konur sem sækjast eftir þungunarrofi, að sögn New York Times. Nú þegar er þungunarrof bannað eftir sjöttu viku meðgöngu í Oklahoma en ríkið er eitt nokkurra sem fór að fordæmi Texas og bannaði þungunarrof eftir að hægt er að greina hjartslátt fósturs. Líkt og lögin í Texas eiga almennir borgarar að framfylgja nýju lögunum í Oklahoma. Þeim væri umbunað fyrir að höfða mál gegn þeim sem brjóta lögin. Hæstiréttur Bandaríkjanna leyfði lögunum í Texas að taka gildi þrátt fyrir að þau stönguðust á við dómafordæmi vegna lagatæknilegra álitamála um þetta ákvæði þeirra. Önnur lög sem eiga að taka gildi í sumar gera þungunarrof refsivert að viðlögðu allt að tíu ára fangelsi með engum undantekningum fyrir nauðgun eða sifjaspell. Fjöldi ríkja þar sem íhaldssamir repúblikanar fara með völd flýtir nú í gegn nýjum og ströngum lögum um þungunarrof þar sem allt stefnir í að stjórnarskrárvarinn réttur kvenna til þess verði afnuminn á næstu vikum. Meirihlutaálit Hæstaréttar Bandaríkjanna sem var lekið nýlega bendir til þess að íhaldssamir dómarar, skipaðir af repúblikönum, búi sig undir að snúa við hálfrar aldar gömlu dómafordæmi um stjórnarskráin tryggi konum rétt til þungunarrofs.
Bandaríkin Þungunarrof Tengdar fréttir Óttast að fleiri réttindi gætu fallið eftir þungunarrofsdóm Fleiri dómafordæmi sem tryggja grundvallarréttindi gætu verið í hættu ef Hæstiréttur Bandaríkjanna sviptir konur rétti til þungunarrofs. Ýmis önnur réttindi byggjast á forsendum sem meirihluti réttarins býr sig nú undir að hafna. 5. maí 2022 14:24 Útspil hæstaréttar um þungunarrof gæti hrist upp í þingkosningum í haust Svipti Hæstiréttur Bandaríkjanna konur rétti til þungunarrofs gæti það haft óútreiknanleg áhrif á þing- og ríkiskosningar sem fara fram í haust. Stríðandi fylkingar í langvarandi menningarstríði telja báðar að slíkur dómur gæfi þeim byr undir báða vængi. 4. maí 2022 14:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira
Óttast að fleiri réttindi gætu fallið eftir þungunarrofsdóm Fleiri dómafordæmi sem tryggja grundvallarréttindi gætu verið í hættu ef Hæstiréttur Bandaríkjanna sviptir konur rétti til þungunarrofs. Ýmis önnur réttindi byggjast á forsendum sem meirihluti réttarins býr sig nú undir að hafna. 5. maí 2022 14:24
Útspil hæstaréttar um þungunarrof gæti hrist upp í þingkosningum í haust Svipti Hæstiréttur Bandaríkjanna konur rétti til þungunarrofs gæti það haft óútreiknanleg áhrif á þing- og ríkiskosningar sem fara fram í haust. Stríðandi fylkingar í langvarandi menningarstríði telja báðar að slíkur dómur gæfi þeim byr undir báða vængi. 4. maí 2022 14:01