Erlendir miðlar um sigur Íslands: „Martraðakennt eftirmiðdegi gegn ótrúlegu hugrekki Íslendinga“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 23. janúar 2022 11:46 Ísland vann magnaðan átta marka sigur gegn Ólympíumeisturum Frakka í gær. EPA-EFE/Zsolt Szigetvary Það voru ekki bara við Íslendingar sem áttum erfitt með að trúa mögnuðum átta marka sigri íslenska handboltalandsliðsins gegn Ólympíumeisturum Frakka á EM í gær. Margir erlendir miðlar fjölluðu um leikinn og franski miðillinn L'Equipe kallaði leikinn „martraðakennt eftirmiðdegi gegn ótrúlegu hugrekki Íslendinga.“
Eins og flestir Íslendingar ættu að vita vann íslenska karlalandsliðið í handbolta ótrúlegan átta marka sigur gegn feiknasterku liði Frakka í milliriðli I á EM í gær. Íslenska liðið var nokkuð mikið lemstrað eftir að átta reyndustu leikmenn liðsins greindust með kórónuveiruna, og því var sigurinn því mun sætari. Sigurinn þýðir það að möguleikar Íslands á sæti í undanúrslitum eru góðir. Sigrar í seinustu tveimur leikjum liðsins gegn Króötum á morgun og Svartfellingum á miðvikudag ættu að skila liðinu þangað, en ekki verður kafað of djúpt í alla þá möguleika sem gætu komið upp hér. Líkt og Íslendingar voru erlendu miðlarnir steinhissa á stórsigri Íslands, og eins og áður segir kallaði L'Equipe leikinn „martraðakennt eftirmiðdegi gegn ótrúlegu hugrekki Íslendinga.“ Franski miðillinn var ekki sá eini sem fjallaði um leikinn á þessum nótum. Bent Nyegaard, handboltasérfræðingur á TV2 í Danmörku fór einnig fögrum orðum um leik Íslendinga. „Þetta er eitthvað það ótrúlegasta sem ég hef séð,“ sagði Nyegaard. Island on fire 🔥🔥🔥 https://t.co/FZG0ig6zxx— Bent Nyegaard (@BentNyegaard) January 22, 2022 „Alls voru átta leikmenn frá vegna kórónuveirunnar, en á ótrúlegan hátt náðu Íslendingarnir að spila gegn „Les Blues“ með hugrekki og hjarta. Magnaður Ómar Ingi Magnússon í hægri skyttu og Viktor Gísli Hallgrímsson í markinu voru meðal þeirra leikmanna sem stigu upp fyrir eldfjallaeyjuna,“ segir í umfjöllun TV2. Danirnir voru ekki þeir einu sem hrósuðu Viktori Gísla fyrir sinn leik, en Martin Frändesjö á TV10 í Svíþjóð sagði í samtali við Sportsbladet að hann hafi fengið tár í augun. „Það gekk allt upp. Maður fær bara tár í augun við að sjá svona leik frá markmanninum,“ sagði Frändesjö. Þrátt fyrir þennan magnaða sigur Íslands í gær er markmiðinu ekki náð enn. Ísland á tvo leiki eftir í milliriðlinum og sá fyrri er gegn Króötum á morgun klukkan 14:30. Hægt verður að fylgjast með beinni textalýsingu frá leiknum hér á Vísi.
EM karla í handbolta 2022 Mest lesið Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Enski boltinn Hvetja fólk til að sækja um vegabréfsáritun núna: „Gæti orðið hörmung“ Fótbolti „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Íslenski boltinn Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ Handbolti Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Enski boltinn „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Handbolti Stjarnan skellti tvisvar á Belichick: „Það er eins gott að þetta sé ekki grín“ Sport Liverpool nær samkomulagi um Slot Enski boltinn Dagskráin í dag: Brjálað að gera í Bestu deildinni Sport Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Enski boltinn Fleiri fréttir Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sveinn í sigti Kolstad FH-ingar skrefi nær úrslitaeinvíginu Bjarki Már atkvæðamikill í dramatískum sigri Bjarni í Selvindi semur við Val Norðmenn töpuðu milljónum á því að halda HM í handbolta „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Umfjöllun: Valur - Minaur Baia Mare 36-28 | Fara út með átta marka forskot „Hefðum þegið betri markvörslu“ „Höfðum stjórn á leiknum allan tímann“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-31 | FH komið í forystu í einvíginu við ÍBV Óðinn með 9 mörk þegar Kadetten tók forystuna í einvíginu „Við erum góðir og þeir eru góðir“ Sjá meira