Leifur gröfustjóri mætti með risaávísun og keypti landsliðsmarkvörðinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. desember 2021 10:02 Leifur Guðjónsson á tali við Guðjón Guðmundsson. S2 Sport Gaupi var á ferðinni í Seinni bylgjunni í gærkvöldi og að þessu sinni var hann kom til Mosfellsbæjar til að hitta mikilvæga menn sem vinna á bak við tjöldin hjá Olís deildar liði Aftureldingar. „
Sjálfboðaliðarnir í Olís deild karla í handbolta skipta mikli máli og sumir hverjir hafa verið lengi að. Leifur gröfustjóri í Mosfellsbænum er búinn að vera í átján ár, ótrúlegt eintak. Sumir segja eina eintakið í Mosfellbænum,“ sagði Guðjón Guðmundsson í upphafi innslagsins síns, Eina, í gær. Gaupi vildi vita hvers vegna menn gefa kost á sér í svona sjálfboðastarf. Ég vil skila einhverju til baka hérna „Þetta er ómetanlegur áhugi hjá mér. Ég hef verið í handboltanum síðan ég man eftir mér og ég vil skila einhverju til baka hérna. Ég er líka í gríðarlega skemmtilegum félagsskap í kringum þetta,“ sagði Leifur Guðjónsson. Guðjón segir frá því að Leifur hafi farið í Hafnarfjörð árið 1997 með ávísun upp á níu hundruð þúsund krónur og að hann hafi keypt með því Bergsvein Bergsveinsson, þáverandi landsliðsmarkvörð. Klippa: Seinni bylgjan: Mennirnir á bak við tjöldin hjá Aftureldingu Leifur svaraði játandi en Gaupi vildi vita meira um málið. Einn kjúklingur sendur með tékkann „Það var einn kjúklingur sendur með tékkann og hann var keyptur hingað. Þetta var hitamál og viðkvæmt mál en það endaði mjög vel fyrir okkur,“ sagði Leifur. Bergsveinn átti eftir að hjálpa Aftureldingu að vinna tvöfalt veturinn 1998-99 fyrstu titla félagsins í karlahandboltanum. Liðið vann gamla lið Bergsveins í báðum úrslitaleikjum. „Nú erum við að upplýsa það hvað hann kostaði,“ sagði Guðjón en Leiftur bætti við: „Þú verður bara að uppreikna það. Þetta var 1999,“ sagði Leifur. Gaupi spurði Leif líka út í skoðanir hans á handboltanum því hann hefur þær og lætur í sér heyra. Tel okkur í stúkunni vera með betri dómurum S2 Sport „Ég tel okkur í stúkunni vera með betri dómurum og við sjáum þetta nokkuð rétt. Við höfum verið að fara oft yfir þetta og ég held að það sé mikill sannleikur í því,“ sagði Leifur og hann er ekki alltaf sáttur með dómarana. „Nei, langt frá því. Það er ágætt að einhver veiti þeim aðhald og geti sagt þeim til,“ sagði Leifur. Ásgeir Sveinsson, formaður bæjarráðs í Mosfellsbæ og fyrrum formaður handknattleiksdeildar Aftureldingar, segir að menn eins og Leifur séu ómissandi. Þessi maður er með endalausar kápur á herðunum „Leifur er okkar traustasti maður og er örugglega búinn að vera í kringum þetta í tuttugu ár. Það er ekki til neitt sem heitir nei hjá Leibba. Það er bara við reddum þessu og svoleiðis menn eru bara nauðsynlegir í svona sjálfboðaliðastarf eins og við erum að reka hérna,“ sagði Ásgeir. Ingi Már og Gunnar Ólafur hafa starfið lengi fyrir Aftureldingu.S2 Sport „Hann sér um þetta allt saman. Hann fer í bakaríið, mokar göturnar í Mosfellsbænum og svo er hann blómakóngur í Grímsbæ. Þessi maður er með endalausar kápur á herðunum,“ sagði Ásgeir. Guðjón sagði einnig frá mönnunum á ritaborðinu í Mosfellsbænum sem hafa verið þar í áratugi. „Þeir fundu upp handboltann að eigin sögn,“ sagði Guðjón. „Við erum búnir að vera rúmlega fjörutíu ár og þú sérð engan bilbug á okkur. Við verðum hér alveg þangað til að við förum á elliheimilið,“ sagði Ingi Már, tímavörður en með honum var Gunnar Ólafur. Það má sjá allt innslagið hér fyrir ofan.
Seinni bylgjan Olís-deild karla Afturelding Mest lesið Uppgjör, viðtöl og myndir: Grindavík-Valur 93-89 | Gulir jöfnuðu metin Körfubolti Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal Íslenski boltinn „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Handbolti Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Enski boltinn Jón Arnar grét það ekki að sjá Daníel slá þrjátíu ára Íslandsmet sitt Sport Uppgjör, viðtöl og myndir: FH-KR 1-2 | KR-ingar á sigurbraut eftir hark í Hafnafirði Íslenski boltinn Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Fleiri fréttir Óðinn og félagar misstu frá sér fimm marka forskot „Þetta einvígi er rétt að byrja“ Bjarki og félagar bikarmeistarar fjórða árið í röð Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Gummersbach heldur í Evrópuvon eftir sigur í Íslendingaslag Haukur og félagar lentir undir í úrslitaeinvíginu eftir vítakeppni Strákarnir hans Gumma komu til baka í öðrum spennutrylli Mættust síðast í úrslitum fyrir aldarfjórðungi Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Sjá meira
Uppgjör, viðtöl og myndir: FH-KR 1-2 | KR-ingar á sigurbraut eftir hark í Hafnafirði Íslenski boltinn
Uppgjör, viðtöl og myndir: FH-KR 1-2 | KR-ingar á sigurbraut eftir hark í Hafnafirði Íslenski boltinn