Atla Rafni var sagt upp af Borgarleikhúsinu í lok árs 2017 vegna meints kynferðislegs áreitis. Stigu þar fram nokkrar konur og sögðu sögur af áreiti Atla Rafns. Voru frásagnir hluti af hinni svokölluðu MeToo byltingu sem þá gekk yfir heiminn. Borgarleikhúsið sendi í kjölfarið frá sér yfirlýsingu þar sem fram kom að uppsögnin hafi verið vel ígrunduð og tekin að vandlega athuguðu máli. Einnig kom þar fram að stjórn leikfélagsins og leikhússtjóri hafi verið einhuga um ákvörðunina.
Héraðsdómur komst í fyrra að þeirri niðurstöðu að uppsögnin hafi verið ólögmæt og að Atli Rafn hafi ekki fengið tækifæri til að bregðast við þeim ásökunum sem upp voru komnar. Voru honum dæmdar 5,5 milljónir í bætur í héraðsdómi vegna málsins. Rekstrarfélag Borgarleikhússins, Leikfélag Reykjavíkur ses. áfrýjaði þeim dómi til Landsréttar.
Kristni Sigurjónssyni var sagt upp af Háskólanum í Reykjavík, en þar starfaði hann sem lektor. Uppsögnin kom í kjölfar orða sem Kristinn lét falla á lokuðum hóp á Facebook. Sagði Kristinn þar að hann vildi síður vinna með konum en körlum. „Ég er svo hjartanlega sammála, það á að aðgreina vinnustaði karla og kvenna. Vandinn er bara að konur reyna alltaf að troða sér þar sem karlmenn vinna, og um leið og þær eru komnar inn, þá byrja þær að eyðileggja hann, því allir karlmennirnir eiga þá að fara að tala, hugsa og hegða sér eins og kerlingar, allt annað er áreiti og ef sagður en neðanbeltisbrandari, svo ég nefni ekki klámbrandari, þá er það kynferðisofbeldi,“ sagði Kristinn.
Héraðsdómur leysti úr því máli svo að þar sem Kristinn lét ummæli sín falla á opinberum vettvangi, þó hópurinn hafi vissulega verið lokaður, mátti hann vænta þess að ummælin færu í dreifingu, meðal annars í fjölmiðlum. Þannig hafi Kristni borið að „vanda það sérstaklega hvernig hann nýtti tjáningarfrelsi sitt,“ eins og það er orðað í dómnum. Var HR þannig sýknaður af kröfum Kristins.
Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrum hæstaréttardómari, er lögmaður Kristins í málinu, og hefur fyrir hönd Kristins áfrýjað málinu til Landsréttar.
Bæði þessi mál vöktu talsverða athygli í fjölmiðlum á sínum tíma, það er því einkar athyglisvert að þau skuli lenda á sama degi, á sama tíma fyrir sama dómstól. Aðalmeðferð málanna beggja fer, eins og fyrr segir, fram á mánudaginn klukkan 9 í Landsrétti. Vænta má dóms í málinu eftir nokkrar vikur.