Adel Taarabt, fyrrum leikmaður QPR, Tottenham, Fulham og AC Milan, er búinn að skrifa undir samning við Al-Nasr í Sameinuðu arabísku Furstadæmunum.
Taarabt, 33 ára, kemur á frjálsri sölu frá Benfica eftir að félagið rifti við hann samningi á dögunum.
Taarabt verður eina stjarnan í liði Al-Nasr en hann hefur kannski haldið að hann væri á leið til Al Nassr í Sádí Arabíu. Þar má nefnilega finna öfluga leikmenn á borð við David Ospina, Luiz Gustavo, Anderson Talisca og Vincent Aboubakar.
Al-Nasr er með fimm stig eftir þrjár fyrstu umferðir tímabilsins í Furstadæmunum, fjórum stigum eftir toppliði Sharjah FC sem er með Paco Alcacer, Miralem Pjanic og Kostas Manolas innan sinna raða.
Athugasemdir