„Verða að fá að velja það sjálfir hvort að þeir syngi, syngi inni í sér, eða sleppi því“ Sindri Sverrisson skrifar 11. október 2021 12:00 Birkir Bjarnason er fyrirliði Íslands í þessum landsleikjaglugga. Vísir/Jónína Guðbjörg Birkir Bjarnason segir að ekki sé hægt að saka endurnýjað og gjörbreytt landslið Íslands í fótbolta um stemnings- eða andleysi. Það sé ekki ástæðan fyrir 1-1 jafnteflinu við Armeníu á föstudag.
Birkir spilar vafalítið sinn 103. A-landsleik í kvöld þegar Ísland mætir Liechtenstein og mun þá aðeins vanta einn leik til að jafna leikjamet Rúnars Kristinssonar. Met sem hann gæti mögulega bætt í nóvember. Í þeim 102 landsleikjum sem hann hefur spilað fyrir Ísland hefur Birkir ekki vanið sig á að syngja með þjóðsöngnum fyrir leik. Það virtist fara fyrir brjóstið á einhverjum hve undirtektir leikmanna voru dræmar þegar þjóðsöngurinn var spilaður fyrir leikinn við Armena, og það jafnvel talið til marks um ákveðið andleysi. Birkir vísar þessu til föðurhúsanna. „Mér finnst við vera með ótrúlega spennandi hóp og mjög marga, mjög efnilega og flotta karaktera í þessum hópi. Ég held að það sé enginn í þessum hópi sem ætti að vera sakaður um slíkt,“ sagði Birkir um meint andleysi. Viðtal við hann má sjá hér að neðan. Klippa: Birkir um þjóðsönginn og andann í íslenska liðinu Eins og fyrr segir þá er það ekkert nýtt hjá Birki, sem erfitt væri að saka um skort á baráttuanda í bláu treyjunni, að hann syngi ekki með þjóðsöngnum. „Nei, ég hef nú yfirleitt ekki gert það. Ég hef nokkrum sinnum gert það inni í hausnum á mér. Menn verða að fá að velja það sjálfir hvort að þeir syngi, syngi inni í sér, eða sleppi því. Það er ekki nein regla sem segir að maður þurfi eða þurfi ekki að gera hluti. Það má hver hafa sína skoðun en menn verða að fá að ákveða þetta sjálfir,“ sagði Birkir í viðtali eftir blaðamannafund í gær. Leikur Íslands og Liechtenstein er á Laugardalsvelli og hefst klukkan 18:45 í kvöld. Um er að ræða síðasta heimaleik Íslands á þessu ári og í undankeppni HM í Katar en liðið lýkur svo undankeppninni með tveimur útileikjum í nóvember.
HM 2022 í Katar Tengdar fréttir „Gulli taldi það mikilvægara fyrir sjálfan sig að fara aftur til síns félags“ „Ég held bara áfram með þá sem eru 100 prósent klárir fyrir landsliðið,“ sagði Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari í fótbolta, þegar hann ræddi við Vísi um óvænt brotthvarf Guðlaugs Victors Pálssonar úr landsliðshópnum. 11. október 2021 09:01 Þunnskipaður hópur gegn Liechtenstein í kvöld Ofan á mikil forföll fyrir leiki íslenska karlalandsliðsins í fótbolta nú í október hafa nú bæst leikbönn og frekari forföll eftir 1-1 jafnteflið við Armeníu á föstudag. 11. október 2021 07:31 Svona var blaðamannafundur KSÍ fyrir leikinn við Liechtenstein Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari í fótbolta sat fyrir svörum ásamt Birki Bjarnasyni, landsliðsmanni, á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í dag. 10. október 2021 13:30 Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Fleiri fréttir Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Fjórir af tíu launahæstu íþróttamönnum heims spila í Sádi-Arabíu Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Sjá meira
„Gulli taldi það mikilvægara fyrir sjálfan sig að fara aftur til síns félags“ „Ég held bara áfram með þá sem eru 100 prósent klárir fyrir landsliðið,“ sagði Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari í fótbolta, þegar hann ræddi við Vísi um óvænt brotthvarf Guðlaugs Victors Pálssonar úr landsliðshópnum. 11. október 2021 09:01
Þunnskipaður hópur gegn Liechtenstein í kvöld Ofan á mikil forföll fyrir leiki íslenska karlalandsliðsins í fótbolta nú í október hafa nú bæst leikbönn og frekari forföll eftir 1-1 jafnteflið við Armeníu á föstudag. 11. október 2021 07:31
Svona var blaðamannafundur KSÍ fyrir leikinn við Liechtenstein Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari í fótbolta sat fyrir svörum ásamt Birki Bjarnasyni, landsliðsmanni, á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ í dag. 10. október 2021 13:30