„Innistæðulausar launahækkanir nú munu aðeins auka atvinnuleysi og verðbólgu“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 23. september 2020 08:19 Þorsteinn Víglundsson starfar í dag sem forstjóri Eignarhaldsfélagsins Hornsteins en var áður þingmaður og varaformaður Viðreisnar. Þar áður var hann framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vísir/Vilhelm
Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Eignarhaldsfélagsins Hornsteins, segir forsendur kjarasamninga brostnar enda ráði atvinnulífið ekki við þær launahækkanir sem samið hefur verið um vegna Covid-kreppunnar. Hann segir innistæðulausar launahækkanir nú muni aðeins auka atvinnuleysi og verðbólgu. Áhyggjuefni sé að við þessar kringumstæður virðist forysta verkalýðshreyfingarinnar ætla að stinga höfðinu í sandinn. Þetta kemur fram í aðsendri grein Þorsteins í Fréttablaðinu í dag. Forsendunefnd lífskjarasamninganna, sem skipuð er þremur fulltrúum Alþýðusambands Íslands og þremur fulltrúum atvinnurekenda, hefur fundað einu sinni og mun funda aftur í dag. Hún sker úr um það hvort forsendur samninganna hafa haldið eða ekki. Vilja ekki segja upp samningum vegna forsendubrests Tvær af forsendum samninganna hafa haldið, vextir lækkað og kaupmáttur aukist, en dagsett loforð ríkisstjórnarinnar um að vinda ofan af verðtryggingunni hafa ekki staðist. Að því er fram kom í Speglinum í gær á forsendunefndin enn eftir að leggja mat á loforð ríkisstjórnarinnar en óljóst er hvort nefndin kemst að niðurstöðu í dag eða á morgun. Það liggur fyrir að atvinnurekendur telja enga innistæðu fyrir launahækkunum. Á móti vill verkalýðshreyfingin ekki segja upp samningunum vegna forsendubrests. Þorsteinn segir í grein sinni að augljóst sé að forsendur samninganna séu brostnar. „Við gerð þeirra var spáð samfelldu hagvaxtarskeiði út samningstímann, að gengi krónunnar héldist stöðugt og verðbólga lág. Spyrja má út frá íslenskri hagsögu hversu raunhæfar þær forsendur voru en í það minnsta er veruleikinn sem blasir við íslensku atvinnulíf i allt annar. Við erum stödd í einu mesta samdráttarskeiði frá upphaf i mælinga. Gengi krónunnar hefur fallið um fimmtung á einu ári, atvinnuleysi stefnir í 10 prósent og verðbólgan er komin af stað á ný. Ljóst er að veturinn verður harður,“ segir hann. Það sem mestu skipti fyrir forsendur kjarasamninga sé að atvinnulífið ráði við þær launahækkanir sem samið hafi verið um. Frá undirritun lífskjarasamninganna í fyrra.Vísir/Vilhelm Ekki „grímulaus hræðsluáróður auðvaldsins“ „Ella er hætt við því að verðbólga eða atvinnuleysi aukist, eða hvoru tveggja. Þetta er ekki „grímulaus hræðsluáróður auðvaldsins“ líkt og gjarnan er haldið fram í tilfinningaþrunginni orðræðu nýrrar forystu ASÍ. Þetta eru einfaldar efnahagslegar staðreyndir. Staðreyndir sem viðurkenndar eru af verkalýðshreyfingu á öllum Norðurlöndunum nema hér. Staðreyndir sem við höfum ítrekað sannreynt hér á landi,“ segir Þorsteinn. Hann bendir á söguna í þessu samhengi, kreppuna í byrjun tíunda áratugs síðustu aldar og hrunsins 2008, og rekur hvernig aðilar vinnumarkaðarins hafi í báðum þessum efnahagslægðum tekið höndum saman og leitað sameiginlega að lausnum. Gott samstarf á vinnumarkaði á vinnumarkaði hafi ekki verið mikilvægara um árabil en einmitt nú: „Við erum að glíma við djúpa og alvarlega kreppu sem vafalítið mun fylgja okkur þar til kórónaveirufaraldurinn hefur gengið yfir. Þótt margt sé jákvætt í íslensku efnahagslíf i til lengri tíma litið er ljóst að það mun taka okkur nokkurn tíma að vinna okkur út úr þessari stöðu. Innistæðulausar launahækkanir ofan í þessa kreppu munu aðeins auka á vandann. Sú orðræða sem heyrst hefur frá verkalýðshreyfingunni, að launahækkanir nú muni auka kaupmátt og draga okkur upp úr kreppu, minnir um margt á orðræðuna á vinnumarkaði fyrir Þjóðarsátt þar sem stjórnlausar víxlhækkanir launa og verðlags leiddu til óðaverðbólgu og efnahagslegrar stöðnunar. Innistæðulausar launahækkanir nú munu aðeins auka atvinnuleysi og verðbólgu. Það þarf að leita annarra leiða. Gott samstarf á vinnumarkaði hefur ekki verið mikilvægara um árabil. Það er áhyggjuefni að við þessar kringumstæður virðist forysta verkalýðshreyfingarinnar ætla að stinga höfðinu í sandinn,“ segir í grein Þorsteins sem lesa má í heild sinni í Fréttablaðinu í dag.
Kjaramál Efnahagsmál Vinnumarkaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ísraelar gera árás á Íran Erlent Straumhvörf í veðrinu Innlent Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Innlent Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Innlent Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Erlent Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Innlent Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Innlent Segjast hafa skotið niður verðmæta sprengjuflugvél Erlent Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Erlent Fleiri fréttir Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Kallað út vegna eldamennsku við Stuðlaháls Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Straumhvörf í veðrinu Náttúran helsta ástæðan fyrir ferðalögum til Íslands Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ Landris stöðugt og hraunbreiðan sex ferkílómetrar Katrín á toppnum um allt land Opna miðstöð fyrir palestínsk börn Íslenska landslagið ómetanlegt fyrir manninn með loftnet í höfuðkúpunni Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Greiðir 2000 krónur á dag í vexti á meðan beðið er eftir Þórkötlu Myndskeið úr Hamraborg og maður sem heyrir liti með loftneti Kíghósti hefur náð útbreiðslu á höfuðborgarsvæðinu Myndband af þjófunum í Hamraborg í fréttum Stöðvar 2 Bein útsending: Hvernig er best að reka heilbrigðisþjónustu? Helga gert að rannsaka slysasleppingarnar Kjarnorkuknúinn kafbátur í stuttri heimsókn Halda andlitinu í skólanum en hrynja niður heima „Sérlega sérstakur“ hellir í Mývatnssveit áfram lokaður Læknir langþreyttur á skriffinnsku: „Mér líður oft eins og Indriða í Fóstbræðrum“ Rúmlega sjö hundruð Grindvíkingar vilja selja Forsetaframbjóðendur í Pallborðinu klukkan 13 á morgun Fylgi forsetaframbjóðenda, mótmæli Grindvíkinga og einhverfa barna Liður í uppbyggingunni að fólk geti sest niður og unnið úr áfallinu Cyrus og Herkúles fá já en Bergman bannaður Dæmdur fyrir árásina í Úlfarsárdal Sjá meira