Smit í ungmennabúðum

„Fyrst og fremst er þetta afar leiðinlegt fyrir smitaða nemandann,‟ …
„Fyrst og fremst er þetta afar leiðinlegt fyrir smitaða nemandann,‟ segir Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður ungmennabúðanna. Ljósmynd/UMFÍ

Kórónuveirusmit greindist í Ungmennabúðum Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) í gær. Búðirnar hófust á mánudag og átti þeim að ljúka um hádegisbilið í gær. Breyting varð þar á vegna smitsins en rúmlega 70 nemendur úr 9. bekk grunnkóla voru sendir heim í gær. 

„Okkur þykir alveg ótrúlega leiðinlegt að smit hafi komið upp í búðunum. Það var búið að vera svo gaman hjá nemendunum í vikunni og þeim liðið alveg frábærlega vel á Laugarvatni. Engum er um að kenna að svona fór. Við erum búin undir aðstæður eins og þessar og vitum að þær geta áfram komið upp í samfélaginu, er haft eftir Sigurði Guðmundssyni, forstöðumanni Ungmennabúða UMFÍ á Laugarvatni, í fréttatilkynningu frá UMFÍ. 

„Fyrst og fremst er þetta afar leiðinlegt fyrir smitaða nemandann. Ég vona að hann finni ekki mikið fyrir áhrifum smitsins. Við munum að sjálfsögðu halda áfram að gæta að sóttvörnum okkar og hreinlæti eins og við gerum alltaf.

Allir nemendur sendir heim og starfsfólk fer í sýnatöku

Í tilkynningunni kemur fram að samstundis hafi verið gripið til varúðarráðstafana og að málið sé unnið í nánu samráði við Almannavarnir og yfirvöld.

„Þegar niðurstaða úr COVID-prófum lá fyrir í gærkvöldi var tekin ákvörðun um að senda alla nemendur heim. Unnið er að ítarlegri sótthreinsun húsnæðis ungmennabúðanna. Allt starfsfólk þeirra þarf í kjölfarið að fara í smitgát og PCR-próf,“ segir í fyrrnefndri tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert