Ríkissaksóknari áfrýjar máli Sigur Rósar: „Mér þykir þetta orðið skammarlegt“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. júní 2021 15:43 Georg Hólm, bassaleikari Sigur Rósar, er greinilega ekki hress með ákvörðun ríkissaksóknara. Vísir/Vilhelm Ríkissaksóknari hefur ákveðið að áfrýja sýknudómi héraðsdóms í máli fjögurra liðsmanna hljómsveitarinnar Sigur Rósar. Liðsmönnum sveitarinnar hefur verið birt áfrýjunarstefna.
Þetta staðfestir Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari í samtali við Vísi. Georg Hólm, bassaleikari sveitarinnar, segir í færslu á Facebook ljóst að saksóknari ætli ekki að gefast upp alveg strax. „Hvað á þessi farsi að halda lengi áfram? Á ég að fara að taka þessu persónulega? Mér þykir þetta orðið skammarlegt.“ Georg deilir mynd teiknarans Halldórs í Fréttablaðinu í færslu sinni. Í skopmynd Halldórs er grínast með það hvort skattayfirvöld ætli ekki að fara í mál við Vigdísi Finnbogadóttur eða Amnesty International fyrst Sigur Rós hafi verið sýknuð í héraði. Áframhaldandi óvissa Sýknudómur í máli sveitarinnar var kveðinn upp þann 25. maí. Löngu tímabær niðurstaða og kærkomin að sögn Bjarnfreðar Ólafssonar, lögmanns Sigur Rósar. „Þú getur rétt ímyndað þér hvað þetta skiptir miklu máli fyrir þá og fjölskyldur þeirra,“ sagði Bjarnfreður við það tilefni. Athygli vakti að í framhaldinu settu fyrrnefndur Georg og frú heimili sitt á sölu. Mögulega til marks um þau tímamót sem sýknudómurinn var. „Þarna er framtíðin í húfi, hvernig þeim reiðir af, hvort þau yrðu gjaldþrota og hvernig þetta yrði allt saman. Þetta er mjög sterk og ákveðin sýkna í þessu máli.“ Nú er hins vegar ljóst að málið fer fyrir Landsrétt. Ákærðir fyrir skattsvik Tónlistarmennirnir fjórir voru grunaðir um stórfelld skattsvik með því að hafa komist hjá því að greiða ríflega 150 milljónir króna. Auk þeirra var endurskoðandi þeirra ákærður í málinu. Skattsvikamál hefur velkst um í réttarkefinu um nokkurt skeið en Landsréttur úrskurðaði í febrúar á síðasta ári að málið færi aftur fyrir héraðsdóm og skyldi tekið til efnislegrar meðferðar. Lögmaður liðsmanna Sigur Rósar gerði á sínum tíma kröfu um að málinu yrði vísað frá á grundvelli laga um tvöfalda refsingu þar sem þeir hefðu þegar greitt sekt vegna málsins. Jón Þór Birgisson og Orri Páll Dýrason í faðmlögum fyrir utan héraðsdóm.Vísir/Vilhelm Eignir tónlistarmannanna – þeirra Jóns Þórs Birgissonar, Kjartans Sveinssonar, Georgs Hólm og Orra Páls Dýrasonar – voru um tíma kyrrsettar við rannsókn málsins, en eignirnar námu um 800 milljónum króna. Jón Þór og Gunnar Þór Ásgeirsson endurskoðandi hans voru einnig sýknaðir fyrir skattsvik er vörðuðu félag Jóns Þórs, Frakk. Voru þeir ákærðir fyrir að hafa komið félagi í eigu Jóns Þórs undan greiðslu tekjuskatts upp á 146 milljónir króna. Það mál fer nú sömuleiðis fyrir Landsrétt.
Dómsmál Skattamál Sigur Rósar Sigur Rós Tengdar fréttir Liðsmenn Sigur Rósar sýknaðir í héraði Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í morgun fjóra liðsmenn hljómsveitarinnar Sigur Rósar af ákæru um stórfelld skattsvik. 25. maí 2021 10:10 Georg og Svanhvít selja á Hávallagötunni Hjónin Georg Hólm, bassaleikari Sigur Rósar, og Svanhvít Tryggvadóttir hafa sett parhús sitt við Hávallagötu á sölu. Húsið er 212 fermetrar og með fasteignamat upp á tæpar 95 milljónir. 31. maí 2021 13:25 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Viðskipti innlent Fjármálastjóri Play segir upp Viðskipti innlent Innsigla B5 að kröfu Skattsins Viðskipti innlent Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Viðskipti innlent Endurgjöf: Það sem þú átt ekki að gera Atvinnulíf Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Viðskipti innlent Eitruð vinnustaðamenning algeng og margfaldar líkur á kulnun Atvinnulíf Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Viðskipti erlent Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Samstarf Fleiri fréttir Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Tryggðu sér 300 milljóna króna fjármögnun Skelltu líka í lás á Exit og í Nýju vínbúðinni Innsigla B5 að kröfu Skattsins Töpuðu þremur milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Farsímatekjur undir væntingum Hæstiréttur sker úr um hvort taka hafi mátt bjór úr hillum Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Selma nýr formaður Kvenna í orkumálum Verðbólgan minnkar en vextirnir hækka Minnsta verðbólga í rúm tvö ár Tekjuhæsti fyrsti ársfjórðungur í sögu Icelandair Hefja viðræður um kaup á 47 þúsund fermetrum af atvinnuhúsnæði Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Stefna að opnun Fiskbúðarinnar við Sundlaugaveg í maí Anna Kristín nýr framkvæmdastjóri hjá atNorth Oculis komið á markað Viðskipti með bréf í Oculis hefjast á morgun Hættir sem fjármálastýra Ljósleiðarans Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Grænna skáta Fækkuðu tímum í skriffinnsku um tugi klukkustunda á mánuði Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Sjá meira
Liðsmenn Sigur Rósar sýknaðir í héraði Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í morgun fjóra liðsmenn hljómsveitarinnar Sigur Rósar af ákæru um stórfelld skattsvik. 25. maí 2021 10:10
Georg og Svanhvít selja á Hávallagötunni Hjónin Georg Hólm, bassaleikari Sigur Rósar, og Svanhvít Tryggvadóttir hafa sett parhús sitt við Hávallagötu á sölu. Húsið er 212 fermetrar og með fasteignamat upp á tæpar 95 milljónir. 31. maí 2021 13:25