Aftökur og aflimanir hefjast á ný Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. september 2021 08:49 Nooruddin Turabi var alræmdur í fyrir hörku í fyrri stjórnartíð talíbana. AP/Felipe Dana Fangelsismálaráðherra Afganistan, Nooruddin Turabi, segir að aftökur og aflimanir verði teknar upp á nýtt, nú þegar talíbanar eru aftur við stjórn í landinu. Þær verði þó mögulega ekki framkvæmdar fyrir opnum tjöldum.
Í viðtali við Associated Press gaf Turabi lítið fyrir gagnrýni á grimmilegar refsingar talíbana, meðal annars opinberar aftökur, og varaði erlend ríki við því að skipta sér af innanríkismálum Afganistan. „Allir gagnrýndu okkur fyrir refsingarnar á íþróttavöllunum en við höfum aldrei gagnrýnt lög og viðurlög annarra,“ sagði hann. „Enginn segir okkur hvernig okkar lög eigi að vera. Við fylgjum íslam og munum byggja okkar lög á Kóraninum.“ Turabi var dómsmálaráðherra í fyrri stjórn talíbana og yfir ráðuneyti velsæmismála. Þá sóttu oft hundruð manna opinberar aftökur, þar sem dauðarefsingin var framkvæmd með byssuskoti í höfuðið. Oft voru það skyldmenni fórnarlambsins sem tóku í gikkinn. Ræningjar misstu ýmist hönd eða fót. Að sögn Turabi munu dómarar ákveða refsingu brotamanna og vill hann meina að konur verði þeirra á meðal. Sagði hann „öryggismál“ að aflima seka, þar sem það væri víti til varnaðar fyrir aðra. Turabi var einn af alræmdari leiðtogum talíbana þegar þeir voru áður við völd en eitt fyrsta verk hans í embætti var að öskra á blaðakonu og skipa henni að yfirgefa herbergi þar sem hún var eina konan. Þá sló hann mann í andlitið sem mótmælti. Hann var einnig mjög strangur þegar kom að útliti og skipaði öllum embættismönnum að bera vefjarhött og safna skeggi. Þeir sem voru stuttskeggjaðir voru lamdir af fylgismönnum hans. Guardian fjallar um málið.
Afganistan Dauðarefsingar Mannréttindi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Segir lág laun leikskólakennara mýtu Innlent Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Innlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Leikskólakennarar ósáttir við vettlingagjörning Innlent Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Innlent Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Innlent Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Innlent Fleiri fréttir Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Rallýbíll ók á áhorfendur á Sri Lanka Ísraelar æfir yfir fyrirhuguðum þvingunum á Netzah Yehuda herdeildina Ríki heims verja metupphæðum til hermála Sjá meira