Verður áfram í Eyjum

Dagur Arnarsson.
Dagur Arnarsson. Sigfús Gunnar Guðmundsson

Miðjumaðurinn Dagur Arnarsson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild ÍBV um tvö ár.

Frá þessu var greint á Facebook-síðu handknattleiksdeildar ÍBV í gær.

Dagur, sem er 23 ára gamall, hefur skorað 52 mörk í 12 leikjum með ÍBV í Olís-deildinni á tímabilinu.

Hann hefur verið lykilmaður hjá uppeldisfélagi sínu undanfarin ár og vann meðal annars bikarkeppni HSÍ með liðinu á síðasta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert