fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Hallbjörn Hjartarson sýndur á RÚV þrátt fyrir að vera dæmdur barnaníðingur

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 20. maí 2022 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lesandi hafði samband við DV og vakti athygli á því að atriði með Hallbirni Hjartarsyni sveitasöngvara hefði birst í Ríkissjónvarpinu í endursýningu á þáttunum Á tali hjá Hemma Gunn.  

Hallbjörn öðlaðist vinsældir fyrir flutning á kúrekatónlist í bandarískum stíl á níunda áratug síðustu aldar. Hann var síðar fundinn sekur um kynferðsbrot gegn börnum, nánar tiltekið gegn tveimur drengjum en annar þeirra var barnabarn hans.  

Lesandanum sem hafði samband þykir óviðeigandi að dæmdur kynferðisbrotamaður birtist í þessu samhengi í sjónvarpi allra landsmanna, þ.e. sem atriði í skemmtiþætti. Vekur þetta spurningar um hvort ritskoða eigi gamalt, endursýnt sjónvarpsefni, með tilliti til uppslýsinga af þessu tagi, eða jafnvel vegna breyttra viðhorfa í samtímanum. Sem dæmi þá þótti það ekki tiltökumál fyrir nokkrum áratugum að troða upp á skemmtun með svokallað „svartfés“ (e. Blackface), þ.e. að hvítur maður sverti andlit sitt til að leika svartan mann. Slíkt þykir með öllu ótækt í dag en til er sjónvarpsefni frá tónleikum og skemmtunum sem sýna slíkt.  

 DV bar málið undir Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóra RÚV, og spurði hvort sýningin á atriði með Hallbirni hefði verið mistök eða meðvituð ákvörðun. Svarið er hvorugt:  

 „Þetta var hvorki meðvituð ákvörðun né mistök.Við höfum  ekki markað okkur þá stefnu þegar kemur að endursýningum eldra efnis að ritskoða, klippa  til og/eða fjarlægja viðkvæm viðfangsefni eins og aðila sem síðar hafa fengið dóma fyrir eitt eða annað. Sérstaklega þegar kemur að dagskrárefni sem fjallar ekki beint um viðkomandi heldur annað og meira. En vitanlega gegnir öðru máli þegar kemur að eldra dagskrárefni sem beinlínis er helgað eða fjallar um viðkomandi. Meðhöndlun slíkra tilfella er einfaldlega afar vandmeðfarin og á þeim er ekki nein augljós lausn. Hafandi sagt það sýnum við fullan skilning á því að slíkt efni sem um ræðir, atriði, viðfangsefni og viðmælendur kunni að koma illa við áhorfendur. Það þykir okkur miður, teljum aldrei léttvægt eða óþarfi að ígrunda sérstaklega því við skiljum þau sjónarmið mætavel að slíkt efni ætti mögulega ekki að vera í boði af tillitsemi við þolendur og áhorfendur almennt.“ 

 DV spurði Skarphéðinn ennfremur hvort kvartanir yfir gömlu efni sem er á skjön við siðferðisviðmið samtímans væru algengar. Hann segir svo ekki vera:  

 „Það hafa að mér vitandi engar kvartanir borist beint til RÚV er snúa að sýningu viðkomandi þáttar og almennt gerist það sárasjaldan að kvartanir berist vegna eldra efnis sem stenst illa skoðun vegna viðmælenda sem síðar hafa hlotið dóma eða viðfangsefnis og efnistaka sem síðar hafa verið endurskoðuð og þykja síður boðleg.“  

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“