Töluvert af líkamsárásum yfir helgina og vopn notuð í einhverjum tilfellum Fanndís Birna Logadóttir skrifar 4. júlí 2022 09:57 Lögregla var meðal annars kölluð út að skemmtistað við Lækjargötu vegna stórfelldrar líkamsárásar. Mynd/Aðsend Þrjár stórfelldar líkamsárásir áttu sér stað í höfuðborginni á aðfaranótt sunnudags. Mikið álag var hjá lögreglunni um helgina þar sem hátt í tvö hundruð mál voru skráð.
Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á aðfaranótt sunnudags en alls voru 87 mál skráð í dagbók lögreglu. Þar standa upp úr þó nokkrar líkamsárásir að sögn Þóru Jónasdóttur, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Frá fimm [á laugardagskvöld] til fimm í [gær]nótt þá var tilkynnt um tíu líkamsárásir víðsvegar reyndar um borgina, þetta tengist ekki aðeins miðbænum, þannig það hefur verið erill hjá lögreglunni,“ segir Þóra. Af þeim líkamsárásum voru þrjár flokkaðar sem stórfelldar, þar af tvær í Hlíðunum og ein í miðbænum, við skemmtistaðinn Auto við Lækjargötu. Alls voru fjórir handteknir. Mismiklir áverkar voru á fórnarlömbum árásanna og á lögregla eftir að fá frekari upplýsingar í nokkrum tilfellum. „Í einhverjum tilfellum voru einhvers konar vopn notuð og það er hérna ein sem er stórfelld þar sem aðili var fluttur á slysadeild,“ segir Þóra. Á föstudagskvöld og aðfaranótt laugardags voru sömuleiðis þó nokkur mál skráð í dagbók lögreglu, alls 77. Þar af voru tvær líkamsárásir skráðar, ein í Hlíðunum og ein í miðbænum. Aðspurð um hvort þetta séu sérstaklega mörg mál þegar litið er til helgarinnar í heild sinni segir hún svo vera. „Þetta er svona töluvert af líkamsárásum má segja yfir helgina, já,“ segir Þóra. Neyðarlínan, dómsmálaráðuneytið og ríkislögreglustjóri, í samstarfi við lögregluna á landsvísu, fóru í síðustu viku af stað með verkefnið Góða skemmtun, þar sem almenningur er hvattur til að stuðla að ofbeldislausu skemmtanalífi. Segja má að erillinn um helgina sýni fram á mikilvægi þess verkefnis, ekki síst nú þegar Covid er að baki. Rætt var við Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, um verkefnið í kvöldfréttum Stöðvar 2 á föstudag en innslagið má finna hér fyrir neðan.
Lögreglumál Reykjavík Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er enginn sem verndar son okkar“ Innlent Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Innlent Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Innlent Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir Innlent Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Innlent Fleiri fréttir Ný gossprunga geti opnast fyrirvaralaust á næstunni Allt að gerast í Vík í Mýrdal um helgina Stór gossprunga gæti opnast fyrirvaralaust Fylgi Höllu Hrundar ekki fast í hendi Tíu kílómetrar eftir af hundrað: Gangan miklu erfiðari en hann óraði fyrir 800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi Sveddi sagður með tengsl við ítölsku mafíuna Vara við því að fara gangandi að gosinu Kastaði glerflösku í höfuð manns og gisti í fangaklefa „Það er enginn sem verndar son okkar“ Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkissjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Sjá meira