Forseti Íslands og forsetafrú til Strassborgar Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 5. desember 2022 12:44 Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid forsetafrú Vísir/Vilhelm Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid forsetafrú munu heimsækja Evrópuráðið í Strassborg í Frakklandi dagana 6.-7. desember. Þar mun forsetinn taka þátt í dagskrá og fundum í tengslum við formennsku Íslands í ráðinu.
Í fréttatilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands kemur fram að þann 6.desember muni Guðni taka þátt í viðburði í Evrópuráðinu um stafrænt kynbundið ofbeldi. Viðburðurinn er skipulagður af fastanefnd Íslands gagnvart Evrópuráðinu, í tengslum við fund aðildarríkja Istanbúlsamningsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi. Með ráðstefnunni verður í fyrsta sinn leitt saman starf Evrópuráðsins um netglæpi annars vegar og um kynbundið ofbeldi hins vegar. Á viðburðinum verður lögð áhersla á þátt karla og drengja í jafnréttisbaráttu og heldur forseti þar opnunarávarp. Síðdegis 6. desember er Guðna síðan boðið sem heiðursgesti í þjóðhátíðarmóttöku fastanefndar Finnlands í Strassborg og mun hann þar ávarpa samkomuna. Miðvikudaginn 7. desember á Guðni síðan fund með varaframkvæmdastjóra Evrópuráðsins, Björn Berge. Þá fundar hann með aðstoðardómsmálaráðherra Úkraínu um ábyrgðarskyldu vegna glæpa sem framdir hafa verið í innrásinni í Úkraínu. Á hádegi verður forsetinn síðan sérstakur gestur á fundi ráðherranefndar Evrópuráðsins. Þar mun hann ávarpa fundinn og ræða leiðtogafund Evrópuráðsins sem haldinn verður í maí 2023 þar sem Ísland verður gestgjafi. Einnig mun hann heimsækja Mannréttindadómstól Evrópu og funda með forseta dómstólsins, Síofra O'Leary. Þá mun Eliza Reid forsetafrú meðal annars taka þátt í viðburði um íslenskar bókmenntir ásamt Einari Kárasyni rithöfundi og opna jólamarkað starfsfólks Evrópuráðsins til styrktar stríðshrjáðu fólki í Úkraínu. Þá sækja forsetahjónin sérstaka sýningu á dönsk-íslensku kvikmyndinni Volaða land fyrir starfsfólk Evrópuráðsins og fastanefndir aðildarríkjanna í Strassborg.
Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Skotárás við heimili Drake Erlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Innlent Fleiri fréttir Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt „Við þurfum ekki að verjast neinu“ „Ég sé engar staðreyndavillur í þessum þætti“ Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Sjá meira