Körfuboltinn af stað næsta miðvikudag

Telma Lind Ásgeirsdóttir úr Breiðabliki og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir úr …
Telma Lind Ásgeirsdóttir úr Breiðabliki og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir úr Skallagrími eiga að spila með sínum liðum næsta miðvikudag. mbl.is/Árni Sæberg

Íslandsmótið í körfuknattleik hefst á nýjan leik á miðvikudaginn kemur, 21. apríl, samkvæmt nýrri niðurröðun sem hefur verið birt á vef KKÍ.

Heil umferð verður leikin í úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildinni, miðvikudagskvöldið 21. apríl, en það er sextánda umferðin af 21. Áætlað er að leika lokaumferðina 8. maí en þá tekur úrslitakeppnin við.

Í úrvalsdeild karla, Dominos-deildinni, er sex umferðum ólokið og þar verður sautjánda umferðin af 22 leikin fimmtudaginn 22. apríl, sumardaginn fyrsta, og föstudaginn 23. apríl. Síðasta umferðin verður leikin 10. maí og þá tekur við úrslitakeppnin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka