Erik Ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, biður stuðningsmenn að vera þolinmóðir. Ten Hag segir félagið vera í uppbyggingarfasa og það krefjist þolinmæði.
Manchester United er komið í úrslit FA bikarsins en möguleikinn á Meistaradeildarsæti er nánast úr sögunni. Starf Erik ten Hag hjá félaginu er ekki talið öruggt en Hollendingurinn segir félagið vera með langtíma áætlun til að koma liðinu aftur á toppinn.
„Við erum með mjög unga leikmenn og þannig byggjum við upp félagið. Það mun taka tíma. Rasmus Højlund, Alejandro Garnacho og Kobbie Mainoo eru allir að spila sitt fyrsta tímabil í ensku úrvalsdeildinni“.
„Deildin verður erfiðari með hverju árinu og því þurfa leikmennirnir að venjast. Það tekur tíma, ég er óþolinmóður maður en við þurfum að vera þolinmóð“.
United situr í sjötta sæti, 23 stigum frá toppliði Arsenal.