Fjölmiðlamaður fékk tveggja ára fangelsisdóm fyrir fjárdrátt Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. nóvember 2020 17:18 Axel Axelsson fékk tveggja ára fangelsisdóm. Ekki þótti ástæða til að skilorðsbinda dóminn vegna alvarleika brotanna. vísir
Axel Axelsson, athafna- og fjölmiðlamaður á Akureyri sem meðal annars hefur rekið útvarpsstöðina Útvarp Akureyri, hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir fjárdrátt. Bæði var hann sakfelldur fyrir að hafa dregið sér tugi milljóna sem stjórnarmaður, framkvæmdastjóri og prókúruhafi einkahlutafélaga og sömuleiðis fyrir fjárdrátt sem löggiltur fasteignasali. Axel var ákærður af héraðssaksóknara og hlaut átján mánaða fangelsisdóm í fyrra. Dómnum var áfrýjað til Landsréttar sem þyngdi dóminn um sex mánuði. Í dómi Landsréttar segir að Axel hafi dregið sér tæplega 37 milljónir króna af fjármunum félaganna Kaupsamningsstofan annars vegar og H014 hins vegar. Peningana lagði hann inn á persónulega bankareikninga sína. Þá var Axel sömuleiðis sakfelldur fyrir að hafa í starfi sínu sem löggiltur fasteignasali hjá Kaupsamningsstofunni dregið sér rúmlega 36 milljónir króna sem hann veitti viðtöku frá kaupanda fasteignar. Peningarnir áttu að fara í greiðslu á veðskuld seljanda fasteignarinnar en Axel ráðstafaði henni í andstöðu við þá skyldu sína. Loks var Axel sakfelldur fyrir meiri háttar bókhaldsbrot með því að hafa látið undir höfuð leggjast að færa lögboðið bókhald og varðveita bókhaldsgögn vegna reksturs Kaupsamningsstofunnar á tilgreindum rekstrarárum. Við ákvörðun refsingar var einkum litið til þess að Axel hafði framið hluta fjárdráttarbrotanna í starfi sem löggiltur fasteignasali. Þá var horft til þess að fjárdrátturinn nam umtalsverðum fjárhæðum. Að því virtu og að teknu tilliti til 77. gr. almennra hegningarlaga var refsing Axels ákveðin fangelsi í tvö ár. Jafnframt var A gert að greiða seljanda fyrrnefndar fasteigna skaðabætur.
Dómsmál Akureyri Fjölmiðlar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Samstarf Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Viðskipti innlent Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Viðskipti innlent Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Viðskipti erlent Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viðskipti innlent Fleiri fréttir Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Verðbólgan úr sex prósentum í ár í 3,5 prósent árið 2026 Vilja gera tilraunir með orkuframleiðslu í geimnum á Íslandi Reksturinn þungur í kjölfar „yfirgangs og afskipta lögreglu“ Fjármálastjóri Play segir upp Sjá meira