Jafnmargir starfandi innflytjendur og fyrir faraldurinn

Alls voru 35 þúsund innflytjendur starfandi í júní og hafa þeir ekki verið jafnmargir síðan faraldurinn byrjaði í mars í fyrra. Ef tekið er tillit til árstíðarsveiflna sést þó að enn vantar töluvert upp á að ástandið verði eins og árið 2019.

Verkamaður við vinnu
Auglýsing

Eftir að hafa fækkað tölu­vert þegar heims­far­ald­ur­inn byrj­aði var fjöldi starf­andi inn­flytj­enda orð­inn jafn­mik­ill í sumar og hann var í byrjun árs í fyrra. Á fyrri helm­ingi árs­ins fjölg­aði starf­andi inn­flytj­endum um rúm fimm þús­und. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Hag­stofu um fjölda starf­andi í júní.

Auglýsing

Á fyrstu þremur mán­uðum síð­asta árs störf­uðu alls rúm­lega 35 þús­und inn­flytj­endur hér­lend­is, en eftir að far­ald­ur­inn skall á í mars árið 2020 fækk­aði þeim tölu­vert. Í fyrra­sumar var fjöldi þeirra kom­inn niður í tæp­lega 33 þús­und, en lág­mark­inu var náð um síð­ustu ára­mót þar sem þeir voru orðnir um 29 þús­und tals­ins.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Hagstofa

Líkt og sjá má á mynd hér að ofan byrj­aði starf­andi inn­flytj­endum svo að fjölga á þessu ári, en fjölg­unin var lang­mest í maí og júní síð­ast­liðn­um. Af þeim inn­flytj­endum sem starfa hér­lendis eru lang­flest­ir, eða um 97 pró­sent þeirra, með lög­heim­ili hér­lend­is. Með brott­flutn­ingi far­and­verka­manna var þetta hlut­fall komið upp í 99 pró­sent um síð­ustu ára­mót, en er nú komið í svipað horf og það var í áður en far­ald­ur­inn byrj­aði.

Fjöldi starf­andi inn­flytj­enda sveifl­ast þó mikið eftir árs­tíð­um, en hann eykst venju­lega á sumrin og dregst svo saman á vet­urna. Á mynd hér að neðan er tekið til­lit til þess­ara árs­tíð­ar­sveiflna og er fjöldi starf­andi inn­flytj­enda síð­asta eina og hálfa árið bor­inn saman við fjöld­ann í sama mán­uði árið 2019.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Hagstofa

Líkt og myndin sýnir fækk­aði starf­andi inn­flytj­endum um tæpan fimmt­ung þegar mest lét, en dregið hefur úr fækk­un­inni á síð­ustu mán­uð­um. Þrátt fyrir að þeir voru orðnir jafn­margir í júní og þeir voru í byrjun síð­asta árs voru þeir 11 pró­sentum færri en í júní árið 2019.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent