„Áskorun fyrir Sveindísi að koma inn í þennan taktíska leik“ Valur Páll Eiríksson skrifar 24. júlí 2021 12:30 Sveindís Jane meiddist snemma móts eftir frábæra byrjun. Instagram/@sveindisss Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari kvennaliðs Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta, kveðst ánægð með Íslendingana tvo hjá liðinu, þær Sveindísi Jane Jónsdóttur og Sif Atladóttur. Sveindís Jane kom til Kristianstad fyrir tímabilið eftir að hafa leikið frábærlega sem lánsmaður hjá Breiðabliki frá uppeldisfélagi sínu Keflavík. Sveindís skoraði 14 mörk í 15 leikjum fyrir Blikakonur er þær urðu Íslandsmeistarar í fyrra. Sveindís skoraði í fyrstu tveimur deildarleikjum sínum fyrir Kristianstad en var síðan frá í mánuð vegna meiðsla. Hún hefur síðan bætt við tveimur deildarmörkum til viðbótar og er alls með fjögur mörk í níu leikjum fyrir liðið á tímabilinu. „Ég er rosa sátt við Sveindísi og þetta er auðvitað pínulítil breyting fyrir hana, þetta er bara öðruvísi deild. Ég er búin að horfa á leiki þegar ég hef verið hér heima og maður sér alveg klárlega muninn. Hérna er mikill kraftur í leikjunum, fram og til baka, færi á báða bóga og mörg mörk,“ segir Elísabet sem segir sænsku deildina vera töluvert taktískari en þá íslensku. „Þetta er ekki alveg þannig í Svíþjóð, eins og þið vitið sem hafið fylgst með þeirri deild, hún er taktískari og mér hefur fundist það vera áskorun fyrir Sveindísi að koma inn í þennan taktíska leik,“ segir Elísabet. Sveindís Jane var keypt til þýska stórliðsins Wolfsburg eftir síðasta tímabil en er aðeins á láni hjá Kristianstad. Elísabet segir að hún verði ekki áfram hjá Kristianstad eftir þetta tímabil, heldur verði klár í slaginn með stórveldinu. „Hún er bara að verða betri og betri og ég tel þetta vera frábært milliskref fyrir hana áður en hún fer í stórliðið Wolfsburg. Hún fer í lok tímabils og verður 100% klár í að fara í alvöruna þar.“ segir Elísabet. Sif á réttri braut Sveindís er ekki eini Íslendingurinn á mála hjá Kristianstad. Varnarjaxlinn Sif Atladóttir er goðsögn hjá félaginu, enda leikið þar sleitulaust frá árinu 2011 undir stjórn Elísabetar. Sif, sem er 36 ára gömul, var frá allt tímabilið í fyrra vegna barneigna og lék sinn fyrsta keppnisleik í eitt og hálft ár þegar hún kom inn í lið Kristianstad í upphafi móts. „Sif er að komast í betra og betra form, mér fannst hún spila frábæran leik, núna þann síðasta fyrir pásuna, þá var hún komin í vörnina aftur. Við söknuðum hennar þar þegar við vorum að spila við Hacken og við fengum á okkur of mikið af mörkum. Þá sá ég að það væri nú gott að henda henni til baka í vörnina. Hún er bara að fá til baka hraðann og svona gamla formið. Ég er 100% að hún muni nýta pásuna vel og það verður gaman að sjá hana í seinni hlutanum.“ segir Elísabet. Viðtalið við Elísabetu má sjá að neðan. Klippa: Elísabet um Sveindísi Jane og Sif Sænska úrvalsdeildin er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Sænski boltinn er hluti af Stöð 2 Sport Erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Sænski boltinn Mest lesið Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Handbolti Stendur með Salah og skilur pirring hans Enski boltinn „Versta ákvörðun í sögu Meistaradeildarinnar“ Fótbolti Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Enski boltinn Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Íslenski boltinn Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann Íslenski boltinn Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Enski boltinn Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Handbolti Sjáðu ótrúlegan vítadóm í Keflavík og fernu Söndru Maríu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Abraham bjargaði stigi sem gæti skipt Rómverja sköpum Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Þrenna Orra Steins hélt titilvonum FCK á lífi Í beinni: KR - Breiðablik | Fyrsti leikurinn á Meistaravöllum í sumar Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann „Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Lyon í úrslit Meistaradeildar Evrópu Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Arnór Ingvi skoraði það sem reyndist sigurmarkið Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Tuchel sár vegna ummæla Hoeness Dúndurbyrjun hjá Gísla og félögum Hákon og félagar upp í þriðja sætið Meistararnir snöggir að nýta sér liðsmuninn „Alveg ljóst að fínni blæbrigði knattspyrnurnnar þurfa að víkja“ Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Spila loks vestur í bæ: „Held það verði fullt í Frostaskjólinu frá hádegi“ Sjáðu ótrúlegan vítadóm í Keflavík og fernu Söndru Maríu Stendur með Salah og skilur pirring hans „Versta ákvörðun í sögu Meistaradeildarinnar“ Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Sandra María: Vil gera betur en í fyrra Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Meistaraþynnka Leverkusen entist ekki og liðið enn taplaust Evrópumeistarar Barcelona sneru dæminu við og eru komnar í úrslit Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór/KA 0-4 | Óvæntur stórsigur gestanna Sjá meira
Sveindís Jane kom til Kristianstad fyrir tímabilið eftir að hafa leikið frábærlega sem lánsmaður hjá Breiðabliki frá uppeldisfélagi sínu Keflavík. Sveindís skoraði 14 mörk í 15 leikjum fyrir Blikakonur er þær urðu Íslandsmeistarar í fyrra. Sveindís skoraði í fyrstu tveimur deildarleikjum sínum fyrir Kristianstad en var síðan frá í mánuð vegna meiðsla. Hún hefur síðan bætt við tveimur deildarmörkum til viðbótar og er alls með fjögur mörk í níu leikjum fyrir liðið á tímabilinu. „Ég er rosa sátt við Sveindísi og þetta er auðvitað pínulítil breyting fyrir hana, þetta er bara öðruvísi deild. Ég er búin að horfa á leiki þegar ég hef verið hér heima og maður sér alveg klárlega muninn. Hérna er mikill kraftur í leikjunum, fram og til baka, færi á báða bóga og mörg mörk,“ segir Elísabet sem segir sænsku deildina vera töluvert taktískari en þá íslensku. „Þetta er ekki alveg þannig í Svíþjóð, eins og þið vitið sem hafið fylgst með þeirri deild, hún er taktískari og mér hefur fundist það vera áskorun fyrir Sveindísi að koma inn í þennan taktíska leik,“ segir Elísabet. Sveindís Jane var keypt til þýska stórliðsins Wolfsburg eftir síðasta tímabil en er aðeins á láni hjá Kristianstad. Elísabet segir að hún verði ekki áfram hjá Kristianstad eftir þetta tímabil, heldur verði klár í slaginn með stórveldinu. „Hún er bara að verða betri og betri og ég tel þetta vera frábært milliskref fyrir hana áður en hún fer í stórliðið Wolfsburg. Hún fer í lok tímabils og verður 100% klár í að fara í alvöruna þar.“ segir Elísabet. Sif á réttri braut Sveindís er ekki eini Íslendingurinn á mála hjá Kristianstad. Varnarjaxlinn Sif Atladóttir er goðsögn hjá félaginu, enda leikið þar sleitulaust frá árinu 2011 undir stjórn Elísabetar. Sif, sem er 36 ára gömul, var frá allt tímabilið í fyrra vegna barneigna og lék sinn fyrsta keppnisleik í eitt og hálft ár þegar hún kom inn í lið Kristianstad í upphafi móts. „Sif er að komast í betra og betra form, mér fannst hún spila frábæran leik, núna þann síðasta fyrir pásuna, þá var hún komin í vörnina aftur. Við söknuðum hennar þar þegar við vorum að spila við Hacken og við fengum á okkur of mikið af mörkum. Þá sá ég að það væri nú gott að henda henni til baka í vörnina. Hún er bara að fá til baka hraðann og svona gamla formið. Ég er 100% að hún muni nýta pásuna vel og það verður gaman að sjá hana í seinni hlutanum.“ segir Elísabet. Viðtalið við Elísabetu má sjá að neðan. Klippa: Elísabet um Sveindísi Jane og Sif Sænska úrvalsdeildin er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Sænski boltinn er hluti af Stöð 2 Sport Erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Sænska úrvalsdeildin er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Sænski boltinn er hluti af Stöð 2 Sport Erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Sænski boltinn Mest lesið Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Handbolti Stendur með Salah og skilur pirring hans Enski boltinn „Versta ákvörðun í sögu Meistaradeildarinnar“ Fótbolti Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Enski boltinn Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Íslenski boltinn Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann Íslenski boltinn Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Enski boltinn Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Handbolti Sjáðu ótrúlegan vítadóm í Keflavík og fernu Söndru Maríu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Abraham bjargaði stigi sem gæti skipt Rómverja sköpum Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Þrenna Orra Steins hélt titilvonum FCK á lífi Í beinni: KR - Breiðablik | Fyrsti leikurinn á Meistaravöllum í sumar Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann „Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Lyon í úrslit Meistaradeildar Evrópu Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Arnór Ingvi skoraði það sem reyndist sigurmarkið Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Tuchel sár vegna ummæla Hoeness Dúndurbyrjun hjá Gísla og félögum Hákon og félagar upp í þriðja sætið Meistararnir snöggir að nýta sér liðsmuninn „Alveg ljóst að fínni blæbrigði knattspyrnurnnar þurfa að víkja“ Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Spila loks vestur í bæ: „Held það verði fullt í Frostaskjólinu frá hádegi“ Sjáðu ótrúlegan vítadóm í Keflavík og fernu Söndru Maríu Stendur með Salah og skilur pirring hans „Versta ákvörðun í sögu Meistaradeildarinnar“ Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Sandra María: Vil gera betur en í fyrra Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Meistaraþynnka Leverkusen entist ekki og liðið enn taplaust Evrópumeistarar Barcelona sneru dæminu við og eru komnar í úrslit Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór/KA 0-4 | Óvæntur stórsigur gestanna Sjá meira
Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn
Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð Íslenski boltinn