Segja áhrif úðans óþekkt og að umfjöllunin komi á óvart Kristín Ólafsdóttir skrifar 16. október 2020 16:12 Landspítalinn í Fossvogi. Spítalinn segir áhrif úðans óþekkt og að umfjöllunin komi á óvart. Vísir/vilhelm
Áhrif nef- og munnúða, sem lækningavörufyrirtækið Viruxal hefur sett á markað og auglýsir sem fyrirbyggjandi gegn kórónuveirunni, eru óþekkt, eftir því sem Landspítala er kunnugt um. Umfjöllunin um úðann kemur Landspítala á óvart. Þetta kom fram í tilkynningu frá Landspítala í dag. Þar sagði jafnframt að niðurstöður rannsókna í mönnum þurfi ávallt að liggja fyrir áður en fullyrt er um gagnsemi nýrra meðferða. Landspítalinn dró þá fullyrðingu til baka eftir athugasemd frá Kerecis á þeim forsendum að úðinn væri skilgreindur sem lækningatæki en ekki lyf í annarri tilkynningu. „Landspítali er háskólasjúkrahús. Auk þess að veita heilbrigðisþjónustu, sinnir starfsfólk spítalans margháttaðu vísindastarfi í samvinnu við innlenda og erlenda aðila, í samræmi við tilskilin leyfi siðanefnda og fleiri aðila. Vísindastarf fjallar um hið óþekkta, í þeim tilgangi að upplýsa það sem ekki er vitað og afla nýrrar þekkingar,“ sagði áfram í tilkynningunni. Fjölmiðlar hafa tekið umræddan nef- og munnúða til umfjöllunar síðustu daga. Íslenska lækningavörufyrirtækið Viruxal ehf., dótturfyrirtæki Kerecis hf., setti umræddan úða á markað. Úðinn er ætlaður sem fyrirbyggjandi vörn gegn kórónuveirunni. Í tilkynningu frá Viruxal um úðann kom fram að varnarlagið innihaldi örfínar fitusýrusameindir „sem samkvæmt mælingum á rannsóknarstofu eyðileggja SARS-CoV-2 með því að rjúfa ytri himnu veirunnar.“ Þá sagði í tilkynningunni að rannsóknir á virkni úðans á mönnum væru í gangi, meðal annars hjá Landspítalanum. „Í annarri bylgju, þegar nýgreindum fór að fjölga í ágúst og september var 128 Covid-19 smituðum boðin þátttaka í samanburðarrannsókn þar sem úðarnir eru gefnir helmingi þeirra og hinn helmingur fær óvirkan samanburðarúða (e. placebo). Covid-göngudeild Landspítalans hefur umsjón með rannsókninni,“ sagði í tilkynningu. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir setti í gær stórt spurningamerki við að úðinn væri auglýstur til notkunar á almennum markaði. Sýna þurfi á virkni slíkrar vöru með rannsóknum. „Þannig að ég tel það varhugavert að vera að auglýsa svona vörur hjá mönnum og gefa fólki von um að það verndi og virki á ákveðinn máta þegar ekki er búið að rannsaka það. […] Þannig að ég set stór spurningarmerki við þetta. Það kann vel að vera að þetta virki en það þarf þá að sýna fram á það með rannsóknum,“ sagði Þórólfur í samtali við fréttastofu í gær. Uppfært 20:30 Fréttin var uppfærð eftir að Landspítalinn sendi frá sér aðra tilkynningu um að hann drægi til baka setningu úr fyrri tilkynningu sinni um úðann eftir athugasemd Kerecis.
Landspítalinn Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Nýsköpun Heilbrigðismál Tengdar fréttir Íslenskir nef- og munnúðar gegn Covid-19 koma á markað Lækningavörufyrirtækið Viruxal ehf., sem er dótturfélag íslenska lækningavörufyrirtækisins Kerecis hf., hefur sett á markað nef- og munnúða sem gætu hjálpað til í baráttunni við Covid-19. 15. október 2020 09:09 Setur stórt spurningarmerki við auglýsta úða gegn veirunni Sóttvarnalæknir setur stórt spurningarmerki við að munn- og nefúði, sem sagður er gefa góða raun sem fyrirbyggjandi vörn gegn kórónuveirunni, sé auglýstur til notkunar á almennum markaði. 15. október 2020 14:30 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Innlent Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Innlent Fleiri fréttir Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Kvöldfréttir Stöðvar 2 Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Hádegisfréttir Bylgjunnar Svipar til gamalla óupplýstra rána Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Sjá meira
Íslenskir nef- og munnúðar gegn Covid-19 koma á markað Lækningavörufyrirtækið Viruxal ehf., sem er dótturfélag íslenska lækningavörufyrirtækisins Kerecis hf., hefur sett á markað nef- og munnúða sem gætu hjálpað til í baráttunni við Covid-19. 15. október 2020 09:09
Setur stórt spurningarmerki við auglýsta úða gegn veirunni Sóttvarnalæknir setur stórt spurningarmerki við að munn- og nefúði, sem sagður er gefa góða raun sem fyrirbyggjandi vörn gegn kórónuveirunni, sé auglýstur til notkunar á almennum markaði. 15. október 2020 14:30