Yfirmaður hjá Sony rekinn eftir birtingu tálbeitumyndbands Samúel Karl Ólason skrifar 6. desember 2021 15:13 Hópur sem kallast People V Preds eða PVP birti skjáskot sem eiga að sýna samskipti Cacioppio og þess sem þóttist vera, og sagðist vera, fimmtán ára gamall drengur. Skjáskot Sony hefur rekið George Cacioppo, varaforstjóra verkfræðideildar fyrirtækisins, eftir að hann birtist í myndbandi hóps sem segist koma upp um barnaníðinga. Cacioppo er sagður hafa mælt sér móts við fimmtán ára dreng en í rauninni mætti til hans maður með myndavél.
Hópurinn, sem kallast People V Preds eða PVP birti skjáskot sem eiga að vera samskipti Cacioppio og þess sem þóttist vera, og sagðist vera, fimmtán ára gamall drengur. Samskipti þessi fóru fram í gegnum forritið Grindr, sem er stefnumótaforrit og að mestu notað af hinsegin fólki. Samkvæmt skjáskotunum skiptust þeir á myndum og ræddu um kynlíf. Í myndbandinu sem um ræðir sést maður ganga upp að Cacioppo, sem var klæddur í bol merktum PlayStation 5. Hann hafði unnið hjá Sony í rúm átta ár. Myndatökumaðurinn kallaði Cacioppo „Jeff“ og spurði hvern hann ætlaði að hitta. Við það gekk Cacioppo inn í hús sitt og neitaði að svara spurningum myndatökumannsins sem öskraði þá að Cacioppo hefði mælt sér móts við fimmtán ára dreng og að hann ætlaði að hringja á lögregluna. CNET leitaði svara hjá Sony vegna myndbandsins en miðlinum barst það svar að vitað væri af myndbandinu og að viðkomandi hefði verið rekinn. PVP segir myndbandið og skjáskot hafa verið send til saksóknara í San Diego í Bandaríkjunum, þar sem Cacioppio býr, en þeir hafa ekki svarað fyrirspurnum. Í samtali við Kotaku segir talsmaður PVP að lögreglan starfi þó sjaldan með þeim og því þurfi að birta myndbönd og aðrar upplýsingar opinberlega. „Þá tekur internetið við,“ sagði talsmaðurinn.
Sony Bandaríkin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Erlent Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Erlent Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents Innlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Fyrsti stríðsþristurinn lentur Innlent Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Erlent „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Innlent Biden segir Ísraela saklausa af ásökunum um þjóðarmorð Erlent 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Innlent Fleiri fréttir Biden segir Ísraela saklausa af ásökunum um þjóðarmorð Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Spánverjar kalla sendiherrann heim í kjölfar ummæla Milei Sigur fyrir Assange sem fær að áfrýja framsali Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Komst loks út í geim sextíu árum síðar Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Sjá meira