Átta FH-ingar inn á áður en þeir skoruðu jöfnunarmarkið gegn Stjörnumönnum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. maí 2021 14:00 Á myndinni sjást sjö FH-ingar. Ekki sést í Phil Döhler sem var í marki FH. stöð 2 sport Of margir leikmenn FH voru inni á vellinum fyrir lokasóknina gegn Stjörnunni í Olís-deild karla á föstudaginn. Einar Örn Sindrason tryggði FH-ingum jafntefli, 30-30, með flautumarki. Stjörnumenn voru með boltann þegar fimm sekúndur voru eftir. Þeir voru sjö inni á vellinum eins og reglur kveða á um en FH-ingar voru með átta, sjö útileikmenn og markvörðurinn Phil Döhler. Enginn á vellinum virtist þó taka eftir þessu nema FH-ingurinn Arnar Freyr Ársælsson sem hljóp af velli rétt áður en leikurinn fór aftur í gang. Það virtist fipa Hafþór Vignisson sem átti að fá sendingu frá Pétri Árna Haukssyni. Birgir Már Birgisson stal boltanum og sendi hann fram á Einar Örn sem skoraði í þann mund sem leiktíminn rann út. Lokatölur 30-30. „Annað hvort er þetta best planaða svindl sem hefur verið gert í sögu Olís-deildarinnar eða bara klaufaskapur,“ sagði Jóhann Gunnar Einarsson í Seinni bylgjunni. Klippa: Seinni bylgjan - Of margir FH-ingar inni á Strákarnir héldu svo áfram að velta fyrir sér hvort þetta hafi verið fyrirfram ákveðið hjá FH-ingum. „Ef þetta var planað var þetta algjör snilld. En svo spyr maður sig, ef þetta var viljandi, hverju hefur hann [Sigursteinn Arndal, þjálfari FH] að tapa, af hverju ekki að reyna þetta. Þetta er kannski ágætis taktík fyrir þjálfara að hafa í vopnabúrinu. Hvað gerist ef dómarinn fattar þetta?“ sagði Ásgeir Örn Hallgrímsson. Jóhanni Gunnari fannst ótrúlegt að átta leikmenn FH hafi farið framhjá dómurum og eftirlitsmanni leiksins. „Burtséð frá þessari snilld, ef þetta var snilld, verður að tala um framkvæmdina, dómarana og eftirlitsdómarana. Það er ekki eins og þetta gerist í miklum hita. Það var leikhlé og allt rólegt,“ sagði Jóhann Gunnar. Innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Seinni bylgjan er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Olísdeildir karla og kvenna í handbolta og er á dagskrá öll mánudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland. Olís-deild karla FH Stjarnan Seinni bylgjan Mest lesið Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Körfubolti LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ Fótbolti „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Fótbolti Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Fótbolti Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Dagskráin í dag: Oddaleikur og nýliðaval Sport Fleiri fréttir FH-ingar skrefi nær úrslitaeinvíginu Bjarki Már atkvæðamikill í dramatískum sigri Bjarni í Selvindi semur við Val Norðmenn töpuðu milljónum á því að halda HM í handbolta „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Umfjöllun: Valur - Minaur Baia Mare 36-28 | Fara út með átta marka forskot „Hefðum þegið betri markvörslu“ „Höfðum stjórn á leiknum allan tímann“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-31 | FH komið í forystu í einvíginu við ÍBV Óðinn með 9 mörk þegar Kadetten tók forystuna í einvíginu „Við erum góðir og þeir eru góðir“ Aldís Ásta atkvæðamikil þegar Skara jafnaði einvígið Zwickau sogast niður í fallbaráttu Orri Freyr fór mikinn í stórsigri Sporting Fredericia missti toppsætið til Skjern Haukur og félagar byrja undanúrslitin vel Þýðir ekki að mæta með hangandi haus: „Það er ekkert bull“ „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Sjá meira
Stjörnumenn voru með boltann þegar fimm sekúndur voru eftir. Þeir voru sjö inni á vellinum eins og reglur kveða á um en FH-ingar voru með átta, sjö útileikmenn og markvörðurinn Phil Döhler. Enginn á vellinum virtist þó taka eftir þessu nema FH-ingurinn Arnar Freyr Ársælsson sem hljóp af velli rétt áður en leikurinn fór aftur í gang. Það virtist fipa Hafþór Vignisson sem átti að fá sendingu frá Pétri Árna Haukssyni. Birgir Már Birgisson stal boltanum og sendi hann fram á Einar Örn sem skoraði í þann mund sem leiktíminn rann út. Lokatölur 30-30. „Annað hvort er þetta best planaða svindl sem hefur verið gert í sögu Olís-deildarinnar eða bara klaufaskapur,“ sagði Jóhann Gunnar Einarsson í Seinni bylgjunni. Klippa: Seinni bylgjan - Of margir FH-ingar inni á Strákarnir héldu svo áfram að velta fyrir sér hvort þetta hafi verið fyrirfram ákveðið hjá FH-ingum. „Ef þetta var planað var þetta algjör snilld. En svo spyr maður sig, ef þetta var viljandi, hverju hefur hann [Sigursteinn Arndal, þjálfari FH] að tapa, af hverju ekki að reyna þetta. Þetta er kannski ágætis taktík fyrir þjálfara að hafa í vopnabúrinu. Hvað gerist ef dómarinn fattar þetta?“ sagði Ásgeir Örn Hallgrímsson. Jóhanni Gunnari fannst ótrúlegt að átta leikmenn FH hafi farið framhjá dómurum og eftirlitsmanni leiksins. „Burtséð frá þessari snilld, ef þetta var snilld, verður að tala um framkvæmdina, dómarana og eftirlitsdómarana. Það er ekki eins og þetta gerist í miklum hita. Það var leikhlé og allt rólegt,“ sagði Jóhann Gunnar. Innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Seinni bylgjan er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Olísdeildir karla og kvenna í handbolta og er á dagskrá öll mánudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland.
Seinni bylgjan er uppgjörsþáttur Stöðvar 2 Sports um Olísdeildir karla og kvenna í handbolta og er á dagskrá öll mánudagskvöld. Upptökur af þættinum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland.
Olís-deild karla FH Stjarnan Seinni bylgjan Mest lesið Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Körfubolti LA Rams velja nýliðana í 16 milljón dollara glæsivillu Sport „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ Fótbolti „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Fótbolti Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Fótbolti Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Dagskráin í dag: Oddaleikur og nýliðaval Sport Fleiri fréttir FH-ingar skrefi nær úrslitaeinvíginu Bjarki Már atkvæðamikill í dramatískum sigri Bjarni í Selvindi semur við Val Norðmenn töpuðu milljónum á því að halda HM í handbolta „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Umfjöllun: Valur - Minaur Baia Mare 36-28 | Fara út með átta marka forskot „Hefðum þegið betri markvörslu“ „Höfðum stjórn á leiknum allan tímann“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-31 | FH komið í forystu í einvíginu við ÍBV Óðinn með 9 mörk þegar Kadetten tók forystuna í einvíginu „Við erum góðir og þeir eru góðir“ Aldís Ásta atkvæðamikil þegar Skara jafnaði einvígið Zwickau sogast niður í fallbaráttu Orri Freyr fór mikinn í stórsigri Sporting Fredericia missti toppsætið til Skjern Haukur og félagar byrja undanúrslitin vel Þýðir ekki að mæta með hangandi haus: „Það er ekkert bull“ „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Sjá meira