35 íbúðir afhentar á Selfossi í dag í hæsta húsnæði á Suðurlandi Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 4. desember 2021 13:03 35 íbúðir eru í nýju blokkinni og það verða líka 35 íbúðir í hinni blokkinni, sem Pálmatré er að byggja á fullum krafti. Magnús Hlynur Hreiðarsson Það eru ánægðir íbúðaeigendur, sem taka á móti lyklum sínum í dag í 35 nýjum íbúðum á Selfossi en blokkin, sem fólkið er að flytja í er hæsta húsnæði á Suðurlandi upp á sex hæðir. Allar íbúðirnar í blokkinni seldust án auglýsinga. Byggingarverktakinn er byrjaður að byggja aðra blokk við hlið þeirra nýju.
Það voru starfsmenn Pálmatrés, sem byggðu blokkina á 14 mánuðum. Öllum íbúðunum 35 er skilað fullkláruðum, þannig að það er bara að flytja inn. Ekki eru bílskúrar eða bílakjallari, sem fylgja íbúðunum. Pálmi Pálsson, sem er frá bænum Hjálmsstöðum í Laugardal rétt við Laugarvatn er eigandi Pálmatrés. „Fólk kemur hér í hollum eftir því á hvaða hæðum það er og fær bara lyklana afhenta og gengur í sínar íbúðir. Svo um helgina eða í næstu viku förum við yfir málin með þeim. Það tók okkur 14 mánuði að byggja blokkina því við gátum ekki farið hraðar út af efnisþurrð og fleiri atriða, þannig að þetta hefur bara gengið mjög vel, tíðin verið góð og allir kátir,“ segir Pálmi. Pálmi segir mikla vöntun á húsnæði á Selfossi og því hafi íbúðirnar í nýju blokkinni selst eins og heitar lummur. Íbúðirnar eru aðeins mismunandi að stærð eða meðal verðið á þeim fullbúnum er um 35 milljónir króna. Pálmi Pálsson, eigandi Pálmatrés er stoltur og ánægður með nýju blokkina og starfsfólkið sitt, sem hefur unnið við að koma henni upp á síðustu 14 mánuðum.Magnús Hlynur Hreiðarsson Pálmi og hans starfsmenn eru byrjaðir á nýrri blokk. „Já, ,við erum búnir að steypa upp annað 35 íbúða hús við hliðina hér og setjum það í sölu með vorinu, þannig að það er áætlað að afhenda það einhvern tíma næsta haust“. Pálmi segir að húsnæðisskortur á Selfossi tengist ástandinu í Reykjavík, fólk er að flytja þaðan og austur fyrir fjall. “Svo er náttúrulega mikil fjölgun á fólki hérna og það hefur bara verið skortur á húsnæði hér á svæðinu. Það er fullt af fólki hér úr nærsveitunum, sem kaupir hér undir börnin sín í námi og þess háttar, þannig að það er ýmislegt sem spilar saman þar,“ bætir Pálmi við. Og þessi nýja blokk, þetta er hæsta íbúðarhús á Suðurlandi, eða hvað? „Mér skilst það já, það hlýtur einhver að fara í hærra á næstunni, það getur ekki annað verið. Blokkinn á að þola alla jarðskjálfta, enda er það útreiknað af sérfræðingum,“ segir Pálmi og hlær, stoltur og sáttur við nýju blokkina. Pálmi, sem fær sér hér í nefið hefur haft nóg að gera við að sýna áhugasömu fólki íbúðirnar í nýju blokkinni. Meðalverð á íbúðunum er um 35 milljónir króna.Magnús Hlynur Hreiðarsson
Árborg Húsnæðismál Byggingariðnaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira