Innlent

Var með félaga sínum og má búast við mörghundruð þúsund króna sekt

Snorri Másson skrifar
lögga

Ökumaður sem átti að vera í einangrun vegna Covid-19 en var stöðvaður í bifreið sinni af lögreglu í gær má eiga von á sekt upp á 150-500 þúsund krónur.

Lögreglan sagði frá því í dagbók sinni í morgun að bifreið hafi verið stöðvuð í Laugardal skömmu eftir miðnætti í gær. Ökumaðurinn reyndist vera með virkt Covid-smit og eiga að vera í einangrun af þeim sökum. Hann var ásamt félaga í bílnum.

Að sögn Þóru Jónasdóttur stöðvarstjóra telur lögreglan ekki að ný reglugerð um að gönguferðir séu heimilar í einangrun feli í sér rýmri heimild til að vera úti að aka.

„Nei ekki samkvæmt því. Þú mátt bara fara í gönguferð. Ef þú ert úti að aka geturðu lent í alls konar óhöppum, er það ekki. Þarna er hann líka með vini sínum á rúntinum, þú mátt ekki vera með öðrum aðila,“ segir Þóra í samtali við fréttastofu.

Ekki liggja fyrir upplýsingar um það hvort umræddur vinur hafi einnig verið með Covid-19.

Tvær gönguferðir, hálftíma hvor

Samkvæmt reglum landlæknis um einangrun í heimahúsi má ekki fara á nein mannamót né taka á móti gestum. Takmarka þarf til hins ítrasta umgengni við annað fólk, en fara má í gönguferðir í nærumhverfi heimilis. 

Viðmiðið þar eru tvær gönguferðir á dag í hámark 30 mínútur í hvort sinn. Ef hinn smitaði þarf heilbrigðisþjónustu má hann nota einkabíl ef hann er ökufær. Annars virðist það ekki mega af reglunum að dæma.

Samkvæmt fyrirmælum ríkissaksóknara skal ákvörðun sektarfjárhæðar í sóttvarnalagabrotum miðast við eðli hvers tilviks. En þegar brotið er gegn einangrun er miðað við 150.000-500.000 króna og er það alvarlegasta brotið.

Fleiri en 10.000 manns eru í einangrun á þessari stundu og rúmlega annar eins fjöldi í sóttkví. 1.207 smit greindust innanlands í gær og þrír eru á gjörgæslu á Landspítala. 37 eru með Covid-19 inni á sjúkrahúsinu.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×