Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 28. mars 2024 13:30 Jón G. Valgeirsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, sem hefur meira en nóg að gera með sínu fólki í fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum. Magnús Hlynur Hreiðarsson Miklar framkvæmdir standa nú yfir á Hellu því þar er verið að byggja við grunnskóla staðarins og þá er ætlunin að byggja líka nýjan leikskóla. Íbúum á staðnum og í sveitarfélaginu öllu, Rangárþingi ytra er líka og fjölga og fjölga og nálgast nú óðfluga að verða tvö þúsund.
Hjól atvinnulífsins í Rangárþingi ytra snúast hratt þessi misserin því það er alls staðar nóg af gera, ekki síst þegar ferðaþjónusta er annars vegar. Þá er sveitarfélagið sjálft í heilmiklum framkvæmdum á Hellu því nú er verið að stækka grunnskólann á staðnum eins og Jón Valgeirsson, sveitarstjóri þekkir manna best. „Já, langstærsta framkvæmdin er þessi uppbygging á skólum á Hellu. Það er verið að byggja og stækka þá grunnskólann og svo í framhaldi af því að byggja nýjan leikskóla, þannig að þetta verði allt í sama húsnæðinu. Þannig að þetta er svona vegferð þar sem við erum búin að taka fyrsta áfanga í notkun og núna er annar áfangi komin á fullt og svo verður þriðji áfanginn, sem verður leikskólabygging en þá verður til stórglæsileg skólaþyrping sem er þá tengt íþróttamiðstöðinni líka, sem er þá bara orðið svolítið hérna inn í miðbænum,“ segir Jón. Jón segir að það standi líka til að byggja nýjan gervigrasvöll á Hellu og öll aðstaða í kringum íþróttir verði stórbætt. Þegar allar byggingarnar í nýju skólaþyrpingunni á Hellu verða tilbúnar verður til glæsileg aðstaða fyrir leik- og grunnskólabörn.Magnús Hlynur Hreiðarsson Og íbúum í Rangárþingi ytra og ekki síst á Hellu fjölgar og fjölgar. „Það er heilmikið í byggingu, bæði hér á Hellu og ekki síður í dreifbýlinu. Það er bara mikil ásókn í það að búa á þessu svæði,“ segir sveitarstjórinn. Myndband af nýja skólasvæðinu á Hellu Og Jón segir að nú styttist óðum í að íbúar Rangárþings ytra verði orðnir tvö þúsund. „Já, við erum núna í dag 1975 sálir, þannig að ég spái því að við verðum komin örugglega yfir tvö þúsund á þessu ári og mögulega kannski strax í sumar.“ En hvað er svona gott við Rangárþing ytra og að búa í því sveitarfélagi ? „Við höfum svolítið allt til alls hérna því við erum vel í sveit sett gagnvart allt og öllu má segja. Við erum náttúrulega með mikla ferðaþjónustu og við erum með þjóðveg eitt í gegnum sveitarfélagið. Við erum með hálendið, við erum með Landmannalaugar og perlurnar þar og við erum með orkuna og svo bara spennandi verkefni, sem við erum að vinna að,“ segir Jón. Nú styttist óðum í að íbúar Rangárþing ytra verði tvö þúsund og líklega mun það gerast í sumar.Magnús Hlynur Hreiðarsson Heimasíða Rangárþings ytra
Rangárþing ytra Skóla - og menntamál Grunnskólar Byggingariðnaður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Samfélagið í áfalli vegna málsins Innlent Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Innlent „Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Erlent Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Innlent „Hann hættir bara ekki” Innlent Vilja bæta íslenskukennslu fyrir innflytjendur Innlent Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Innlent Fleiri fréttir „Algjörlega forkastanlegt“ ef stjórnvöld svari ekki beiðninni Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Samfélagið í áfalli vegna málsins Vilja bæta íslenskukennslu fyrir innflytjendur Ragnar Freyr segist hreinsaður af sök Læknir segir að brottvísun muni ógna lífi sjúklings „Er réttur þinn eða mannréttindi að einhver annar deyði þig?“ Kviknaði í bragga á Egilsstöðum Bíó og plokkfiskur á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina Meint fjárkúgun, frelsissvipting og líkamsárás Rannsaka alvarlegt ofbeldisbrot í Árnessýslu Pólitíkin, dánaraðstoð, NATO og kosningar á Sprengisandi „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Grunaðir um rán í miðbænum Aðrir frambjóðendur en efstu tveir eigi töluvert langt í land Sauð upp úr milli bónda og dýraverndunarsinna Kappræðurnar höfðu talsverð áhrif á kjósendur Forréttindi að fá að fylgja fólki í gegnum erfiðasta tíma lífsins Vilja breyta fyrirkomulagi við úthlutun plássa „Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“ Handtaka hælisleitenda og brottrekstur Hollands úr Eurovision Hitaveitulögn sprakk í Breiðholti Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana Rigning í kortunum í kvöld „Hann hættir bara ekki” Hótaði lögregluþjónum og fjölskyldum þeirra Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Mótmælendur gegn brottvísun hindruðu för lögreglubíls Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Forsetakosningar á Eyrarbakka – munu sakna buffsins frá Guðna Sjá meira