Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær sagði eldfjallafræðingur að það þyrfti að skoða að reisa eldgosavarnir við Hafnarfjörð eftir skjálfta sem varð í Trölladyngju. Annar eldfjallafræðingur tók svo undir með honum hvað varðar garðana þar sem það væri skynsamlegast. Sviðsstjóri almannavarna segir hins vegar að það sé ekki tímabært að ræða varnargarða þar.
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir orð eldfjallafræðinganna þannig séð ekki hafa komið henni á óvart þar sem menn hafi ályktað um ýmislegt síðustu mánuði. Hún sé þó sammála almannavörnum, það sé ótímabært að fara að skoða varnargarða þar sem enn er unnið að hættumati fyrir svæðið.
„Við munum bara núna, áfram, eins og hingað til, treysta sérfræðingunum og þeirra mati á áhættu. Og hvort mál þróist með þeim hætti að það sé tilefni til þess að skoða fyrirbyggjandi aðgerðir. Þá munum við í Hafnarfirði ekki láta okkar eftir liggja í þeim efnum og verðum tilbúin fyrir aðgerðir,“ segir Rósa.
Bíða og sjá
Hún forðast stórar yfirlýsingar.
„Það er ekki hægt að vera með einhverjar yfirlýsingar núna. Það þarf heildstætt hættumat fyrir svæðið allt sem verið er að vinna að. Þar koma að allir okkar fremstu vísindamenn og sérfræðingar. Við verðum bara að bíða eftir því og taka þessu bara með ró og stillingu,“ segir Rósa.
Ekkert sérstaklega stór
Jarðskjálftinn mældist 4,5 að stærð og fannst vel hér á höfuðborgarsvæðinu. En hvað þýðir þessi skjálfti fyrir framhaldið? Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur telur hann þýða afar lítið.
„Þetta er bara jarðskjálfti á flekaskilum Reykjanesskagans og hefur enga sérstaka afgerandi þýðingu í túlkun á atburðarrásinni sem er búin að vera í fjögur ár. Það eru búnir að vera miklu stærri skjálftar á svipuðum slóðum síðan árið 2020. 4,5 er ekkert sérstaklega stór skjálfti. Það hefur verið talað um að ef Brennisteinsfjallakerfið tekur þátt í þessu, þá getur því fylgt skjálftar upp á jafnvel sex eða stærra. Það eru alvöru skjálftar sem munu hafa veruleg áhrif í Reykjavík. Ef mönnum þótti þessi skjálfti stór eiga menn eftir að finna eitthvað merkilegra seinna,“ segir Páll.