„Maður vill vera í betra standi en þetta en samt gott að vera kominn aftur“ Atli Arason skrifar 2. maí 2021 21:31 Júlíus Orri Ágústsson vísir/bára Júlíus Orri Ágústsson, leikmaður Þór Akureyri, spilaði sinn fyrsta leik í langan tíma eftir erfið meiðsli. Júlíus spilaði í heildina 8 og hálfa mínútu gegn Njarðvík í kvöld en náði þó ekki að setja nein stig á töfluna. „
Það er gaman að vera kominn aftur en maður vill vera í betra standi en þetta en samt gott að vera kominn aftur,“ sagði Júlíus Orri. Júlíus var hins vegar ekki sáttur við frammistöðu Þórs í þessum mikilvæga leik gegn Njarðvík sem tapaðist með 22 stigum, 97-75. Í beinni: Njarðvík - Þór Ak. | Sigur það eina sem er í boði fyrir Njarðvíkinga „Þetta er mjög svekkjandi, mér fannst við spila sem fimm einstaklingar í dag frekar en að spila sem lið. Sérstaklega þegar þetta er mikilvægasti tímapunkturinn þá er óboðlegt að bjóða upp á svona frammistöðu.“ „Mér fannst við brotna allt of snemma og ef við förum undir þá endum við að tapa með 20 eins og hefur gerst allt of oft í vetur.“ Þór Akureyri er sem stendur með verstu nettó stiga söfnun í deildinni eða -141 stig. Fari svo að Njarðvík og Þór endi jöfn af stigum í deildinni þá endar Njarðvík ofar í töflunni á nettó stigatölu vegna þess að bæði lið unnu innbyrðis viðureignirnar með 22 stiga mun. Njarðvík er með -52 stig í nettó eins og staðan er núna. Þór var lengi vel inn í leiknum en að loknum þriðja leikhluta var Njarðvík aðeins sjö stigum yfir en leikur Þórs hrynur í fjórða leikhluta þar sem þeir tapa leikhlutanum með 15 stigum. Aðspurður að því hvað gerist hjá Þór í fjórða fjórðung hefur Júlíus fá svör. „Ég bara veit það ekki. Örugglega bara andleysi og væl í dómaranum og eitthvað svoleiðis. Það er samt enginn afsökun fyrir því hvað við spiluðum illa í kvöld. Við vorum bara mjög lélegir.“ Eftir að hafa verið á flugi fyrir covid hlé hafa Akureyringar núna tapað fjórum leikjum í röð eftir hlé. Júlíus kallar eftir því að liðið svari þessu slæma gengi undanfarið í næstu og síðustu tveimur leikjunum sínum. „Ég held bara að við séum svolítið andlausir. Hléið hefur greinilega farið mjög illa í okkur. Við verðum bara að laga þetta á móti Þorlákshöfn og Haukum og vinna síðustu tvo.“ Næsti leikur liðsins er gegn Þór í Þorlákshöfn. Júlíus telur þennan leik mikilvægan ef Þór Akureyri ætlar sér ekki að sogast niður í fallbaráttuna. „Miðað við hvernig staðan er núna þá verðum við bara að gefa okkur alla fram í þessa tvo leiki til að halda okkur uppi og vonandi komast í úrslitakeppnina,“ sagði Júlíus Orri Ágústsson að lokum.
Þór Akureyri UMF Njarðvík Mest lesið Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Körfubolti Dagný ánægð að vera mætt aftur til æfinga Enski boltinn Vikan varð enn verri fyrir Barcelona: Refsað fyrir nasistakveðjur og fordóma Fótbolti „Þurfum á öllum að halda fyrir loka áhlaup í deildinni“ Fótbolti Þjálfari Hákon Arnars: „Áttum skilið að fara áfram“ Fótbolti „Hlakka rosalega til að sjá troðfullt hús á mánudaginn“ Körfubolti Ramos rekinn úr húsi fyrir að sparka í klof Bookers Körfubolti Dagskráin í dag: Sófadagur í sólarhring Sport Hvað viltu meira? „Góð aðventa með handbolta og skíðum“ Handbolti Ósáttur með dómara leiksins: „Eins og að spila gegn fjórtán mönnum“ Fótbolti Fleiri fréttir „Hlakka rosalega til að sjá troðfullt hús á mánudaginn“ Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Þór Þ. 107-110 | Þórsarar sigri frá undanúrslitum Uppgjörið: Valur - Höttur 94-74 | Valsmenn taka forystuna í einvíginu Ramos rekinn úr húsi fyrir að sparka í klof Bookers Curry reyndi að fá Clark til Under Armour en Nike hafði betur Lét leikmenn Tindastóls heyra það: Fólk hérna á þetta ekki skilið Baulað á Sixers en liðið kom til baka og komst áfram „Við bara fóðruðum dýrið og dýrið borðaði“ „Þær skoruðu full auðveldlega á okkur í dag“ „Sem betur fer var leikurinn bara 40 mínútur í dag“ Uppgjörið: Keflavík - Fjölnir 88-72 | Deildarmeistararnir flugu í undanúrslit Uppgjör, viðtöl og myndir: Haukar - Stjarnan 80-78 | Haukasigur eftir dramatík LeBron fer fyrir ógnarsterku liði Bandaríkjanna á ÓL Golden State komst ekki í úrslitakeppnina en Lakers verður með „Erum að spila á móti ríkjandi Íslandsmeisturum og þurfum að vera klárar“ „Náðum að keyra upp hraðann á réttum mómentum“ „Ég held að þetta komi bara með reynslunni“ „Náðum að valta yfir þær í seinni hálfleik“ Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Valur 92-59 | Einstefna og grænar einum sigri frá undanúrslitum Uppgjörið: Grindavík - Þór Ak. 93-75 | Grindvíkingar flugu inn í undanúrslitin Leggur skóna á hilluna Arnór átti Play leiksins: „Hann var stórkostlegur“ Óli var búinn að vara við: „Ef þeir syngja um mig þá kveikir það í mér“ Mætti fyrst allra í Prada og var valin fyrst Kjartan Atli sló metið sem þjálfari sem hann setti sem leikmaður Uppgjör: Tindastóll - Grindavík 88-99 | Gulir með annan fótinn í undanúrslit „Þeir náðu svolítið að snúa þessu í sinn leik“ „Svona leikir eru leikir andans“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Álftanes - Keflavík 77-56 | Nýliðarnir jöfnuðu metin í einvíginu Sjá meira