Réttarhöld í mannránsmáli Salvini hafin Vésteinn Örn Pétursson skrifar 24. október 2021 08:41 Salvini ræddi við blaðamenn fyrir utan dómhúsið í Palermo í gær. Þar hæddist hann meðal annars að þeirri staðreynd að leikarinn Richard Gere væri á meðal vitna ákæruvaldsins. AP/Gregorio Borgia Réttarhöld yfir Matteo Salvini, fyrrverandi innanríkisráðherra Ítalíu, eru hafin. Hann er ákærður fyrir mannrán og vanrækslu embættiskyldna með því að hafa komið í veg fyrir að björgunarskip með farandverkafólk innanborðs kæmi að höfn á Ítalíu. Hann neitar sök.
Meint embættisbrot Salvinis átti sér stað í ágúst árið 2019, þegar hann lét loka höfnum fyrir spænsku björgunarskipi sem innihélt 150 farandverkafólks sem hafði verið bjargað af flekum og bátum í Miðjarðarhafinu. Áhöfn og farþegar skipsins vörðu því 19 dögum úti fyrir ströndum Ítalíu áður en því var leyft að leggja að höfn. Breska ríkisútvarpið greinir frá því að aðstæður um borð hafi á þeim tíma orðið afar slæmar. Hollywood-leikari meðal vitna Á fyrsta degi réttarhaldanna í gær var hlustað á vitnaskýrslur frá vitnum beggja megin borðsins, þeirra sem ákæruvaldið og verjendur Salvini höfðu kallað til. Meðal vitna ákæruvaldsins er bandaríski leikarinn Richard Gere, sem var um borð í björgunarskipinu. Áður en réttarhöldin hófust hæddist Salvini að aðkomu leikarans að málinu. „Ég velti fyrir mér hvort það sé raunverulega satt að Richard Gere frá Hollywood ætli að bera vitni um hegðun mína fyrir réttinum,“ sagði Salvini við blaðamenn fyrir utan dómsalinn. Meðal annarra vitna í málinu eru Giuseppe Conte forsætisráðherra og ráðherrar í ríkisstjórn hans. Gere hafði farið um borð í skipið skömmu áður en því var leyft að leggjast að höfn á ítölsku eyjunni Lampedusa. Málið var afar umdeilt á sínum tíma og olli togstreitu í þáverandi ríkisstjórn Ítalíu. Það var svo í febrúar á síðasta ári sem öldungadeild ítalska þingsins greiddi atkvæði með því að svipta Salvini friðhelgi sem hann naut sem þingmaður. Í kjölfarið var hægt að ákæra hann fyrir hin meintu brot.
Ítalía Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Eldvörp líkleg næst Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Innlent Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Fleiri fréttir Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Börnum safnað saman og þau skotin Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Lýsa hræðilegu ofbeldi fyrir sjóslys þar sem tugir létu lífið Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Sjá meira