Pistill djákna fjarlægður af vefsvæði Fréttablaðsins Jakob Bjarnar skrifar 10. júlí 2020 16:57 Jón er búinn að biðja Birgi afsökunar á pistli Guðmundar djákna og býst ekki við því að neinir eftirmálar verði úr þeirri áttinni. visir/vilhelm
Nokkurt uppnám hefur orðið innan vébanda Fréttablaðsins vegna pistils bakþankahöfundar blaðsins, Guðmundar Brynjólfssonar sem birtist í blaði dagsins. Pistillinn heitir „Ringo“ en þar beinir Guðmundur spjótum sínum að þingmanni Miðflokksins, Birgi Þórarinssyni með afar harkalegum hætti: Segir hann skepnu, skíthæl og með svarta sál. Athygli vekur að bæði pistlahöfundur og viðfangsefni hans eru miklir kirkjunnar menn. Ekki það sem Fréttablaðið stendur fyrir Búið er að fjarlægja pistillinn af vefsvæði blaðsins en Jón Þórisson ritstjóri segir, í samtali við Vísi, að hann standist ekki þær kröfur sem gerðar eru til svona efnis. „Þetta er ekki það sem við stöndum fyrir,“ segir Jón. Hluti pistils Guðmundar djákna. Ekki er hægt að stroka hann út úr blaðinu en þennan pistil er ekki að finna á vefsvæði Fréttablaðsins, eins og venja er til með bakþankapistla, nema þá í pdf-útgáfu blaðsins. Nafnlaus pistlahöfundur Viljans, sem kallar sig „kallinn“, ritar pistil þar sem hann gerir pistilinn að umtalsefni: „Fáheyrt níð djákna á baksíðu Fréttablaðsins um þingmann“. Kallinn spyr og segir tilefni til: „Hvar var dómgreind þeirra stjórnenda Fréttablaðsins sem ákváðu að birta þennan viðbjóð, sem er augljóslega bæði blaðinu og höfundi til ævarandi skammar?“ Dylgjur og rógur sem ekki á heima í blaðinu En, „Kallinn“ þarf ekki að spyrja lengur því Jón segir einfaldlega pistilinn ekki standast mál. „Það voru mistök að birta þetta í blaðinu, það gerist fyrir röð mistaka,“ segir ritstjórinn. Hann segir einnig að búið sé að hafa samband við Birgi. „Ég talaði við þann sem þetta beindist að og færði fram innilega afsökunarbeiðni af okkar hálfu. Því var vel tekið og ég býst ekki við því að það verði neinir eftirmálar úr þeirri áttinni.“ Ekki liggur fyrir hvort áframhald verði á skrifum Guðmundar fyrir blaðið. Jón segist ekki vera búinn að ræða það við hann. Ritstjórinn segir að þau hjá Fréttablaðinu hafi boðið mönnum að senda inn aðsendar greinar og eru þá með fasta pistlahöfunda til að auka fjölbreytnina í blaðinu. Hann segir einhver viðbrögð hafa orðið vegna pistilsins en þó ekki mikil. Jón segir að vissulega sé munur á viðhorfspistlum, þar sem menn hafa frjálsar hendur og svo fréttaflutningi sem þurfi að lúta faglegum lögmálum. „En ég lít ekki svo á að menn hafi fullkomið frelsi, þarna er augljóslega farið yfir línur; þetta eru dylgjur og rógur sem Fréttablaðið getur ekki verið vettvangur fyrir.“
Fjölmiðlar Alþingi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Ef stelpur byrja ungar á blæðingum er það fyrsta flaggið“ Innlent Katrín leiðir og hefur tölfræðilega marktækt forskot á Baldur Innlent Halda andlitinu í skólanum en hrynja niður heima Innlent Læknir langþreyttur á skriffinnsku: „Mér líður oft eins og Indriða í Fóstbræðrum“ Innlent Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Erlent Tvö flutt á slysadeild eftir bílveltu Innlent Ritskoðun bjóra: „Þetta er gert fyrir börnin“ Innlent Forsetaframbjóðendur í Pallborðinu klukkan 13 á morgun Innlent Myndband af þjófunum í Hamraborg í fréttum Stöðvar 2 Innlent Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Erlent Fleiri fréttir Myndband af þjófunum í Hamraborg í fréttum Stöðvar 2 Bein útsending: Hvernig er best að reka heilbrigðisþjónustu? Helga gert að rannsaka slysasleppingarnar Kjarnorkuknúinn kafbátur í stuttri heimsókn Halda andlitinu í skólanum en hrynja niður heima „Sérlega sérstakur“ hellir í Mývatnssveit áfram lokaður Læknir langþreyttur á skriffinnsku: „Mér líður oft eins og Indriða í Fóstbræðrum“ Rúmlega sjö hundruð Grindvíkingar vilja selja Forsetaframbjóðendur í Pallborðinu klukkan 13 á morgun Fylgi forsetaframbjóðenda, mótmæli Grindvíkinga og einhverfa barna Liður í uppbyggingunni að fólk geti sest niður og unnið úr áfallinu Cyrus og Herkúles fá já en Bergman bannaður Dæmdur fyrir árásina í Úlfarsárdal Katrín leiðir og hefur tölfræðilega marktækt forskot á Baldur „Ef stelpur byrja ungar á blæðingum er það fyrsta flaggið“ Tvö flutt á slysadeild eftir bílveltu Jón Jónsson kemur nýr inn í stjórn Boða til fundar til að ræða framtíð MÍR eftir dómsmál Fjölgun ofbeldisbrota gegn lögreglu og öðrum opinberum starfsmönnum Ritskoðun bjóra: „Þetta er gert fyrir börnin“ Steingrímur J og Njáll Trausti sameinast í orkuvæðingu norðausturhornsins Flóttamenn tóku forskot á stóra plokkdaginn Frumskógur bílastæðagjalda og þau hæstu þúsund krónur Grindvíkingar boða til mótmæla gegn Þórkötlu „Engin ástæða til að boða til kosninga“ Segir „ómanneskjulegt“ álag á foreldrum einhverfra barna Stungumaður þarf að dúsa inni fram að dómi Sagði upp til að annast einhverfa dóttur, vantraust á þingi og bílastæðagjöld Vantrauststillagan felld Skólabrú með garði á þakinu „djörf og fersk“ tillaga Sjá meira