Blikar fyrsta liðið í sextán ár með fullt hús eftir fimm leiki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. maí 2022 11:00 Blikar hafa byrjað mótið frábærlega. Hér fagna þeir einum af fimm sigrum sínum í Bestu deildinni. Vísir/Hulda Margrét Breiðablik komst í gærkvöldi í sannkallaðan úrvalshóp með átta öðrum liðum sem hafa náð fullkominni fimm leikja byrjun á Íslandsmótinu frá því að liðin fóru að spila heima og að heiman sumarið 1959. Blikar unnu 3-2 sigur á Stjörnunni á Kópavogsvellinum í gær og hafa þar með unnið fimm fyrstu leiki sína í Bestu-deildinni. Markatalan er sextán mörk skoruð gegn aðeins fjórum fengnum á sig. Blikar hafa unnið Keflavík, KR, FH, ÍA og svo Stjörnuna í þessum fyrstu leikjum tímabilsins. Það eru liðin sextán ár síðan lið náði slíkri byrjun í efstu deild og þetta er því metbyrjun hjá Breiðabliki í tólf liða deild. Síðasta lið á undan Blikum til að ná fullkominni fimm leikja byrjun voru FH-ingar sumarið 2006. Það FH-lið endaði á því að meistari sem og FH-liðið árið áður sem vann líka fimm fyrstu leiki sína. Sumarið 2005 vann líka annað lið fimm fyrstu leiki sína en það voru Valsmenn. Þeir eru eina liðið ásamt Keflavíkurliðinu sumarið 1997 sem hafa fengið fimmtán stig af fimmtán mögulegum í fyrstu fimm leikjunum en ekki náð að fylgja því eftir og verða Íslandsmeistarar. KR varð fyrsta liðið til að ná þessu sumarið 1959 en það lið vann alla tíu leiki sína á tímabilinu. Frá 1959 til 1995 bættust þrjú lið í hópinn, Keflavík 1973, Valur 1978 og ÍA 1995 en þau unnu öll Íslandsmeistaratitilinn með sannfærandi hætti. Það er ekki nóg með að Blikar hafi unnið fimm fyrstu leiki þessa tímabils því þeir unnu einnig átta af síðustu níu leikjum sumarsins í fyrra. Þetta eina tap kostaði þá titilinn en Blikar eru nú búnir að vinna þrettán af síðustu fjórtán leikjum sínum í efstu deild. Það er því óhætt að segja að Blikar hafi tekið upp þráðinn frá síðasta hausti og eru nú í góðri stöðu á toppi deildarinnar. Í raun allt annarri stöðu en í fyrrasumar þegar liðið vann bara tvo af fyrstu fimm leikjum sínum og var með átta stigum færra eftir jafnmarga leiki og í ár. Lið með fullt hús eftir fimm leiki (Frá því að tvöföld umferð var tekin upp 1959) Breiðablik 2022 (16-4) ??? FH 2006 (11-3) - Varð Íslandsmeistari FH 2005 (15-2) - Varð Íslandsmeistari Valur 2005 (15-3) - 2. sæti Keflavík 1997 (9-1) - 6. sæti ÍA 1995 (10-1) - Varð Íslandsmeistari Valur 1978 (14-5) - Varð Íslandsmeistari Keflavík 1973 (12-1) - Varð Íslandsmeistari KR 1959 (25-3) - Varð Íslandsmeistari Besta deild karla Breiðablik Mest lesið Kelce framlengir og verður launahæsti innherji sögunnar Sport „Þeir voru bara miklu betri í kvöld og áttu sigurinn skilið“ Körfubolti Rúnar Páll: Við eigum þetta ekki skilið en svona er þetta Fótbolti Albert skoraði þegar Genoa gulltryggði sætið í efstu deild Fótbolti „Við eigum að geta varist föstum leikatriðum“ Íslenski boltinn Lopetegui tekur við AC Milan Fótbolti „Skákin er bara byrjuð“ Körfubolti Uppgjör: Valur - Njarðvík 84 - 105 | Deildarmeistararnir fengu kjaftshögg Körfubolti Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Undanúrslit í Meistaradeild Evrópu og Subway-deild karla Sport Fleiri fréttir „Við eigum að geta varist föstum leikatriðum“ „Það er mikill efniviður í Fram“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Uppgjör og viðtöl: Fylkir - Stjarnan 0-1 | Stjörnumenn stálu öllum stigunum „Nú verður Edda brjáluð þegar ég hitti hana næst“ Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Fyrstir í sautján ár til að vinna fjóra fyrstu leikina tvö ár í röð Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann „Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð „Alveg ljóst að fínni blæbrigði knattspyrnurnnar þurfa að víkja“ Spila loks vestur í bæ: „Held það verði fullt í Frostaskjólinu frá hádegi“ Sjáðu ótrúlegan vítadóm í Keflavík og fernu Söndru Maríu Sandra María: Vil gera betur en í fyrra Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór/KA 0-4 | Óvæntur stórsigur gestanna Uppgjör og viðtöl: Breiðablik - Tindastóll 3-0 | Sannfærandi sigur Blika á kraftmiklum Stólum „Við þurfum að þekkja okkar vitjunartíma og taka færin“ Uppgjörið og viðtöl: Þróttur R. - Valur 1-2 | Amanda heldur áfram að skora „Við erum ekki að fara rúlla yfir eitt eða neitt mót“ Sharts í aðalhlutverki í endurkomusigri Stjörnunnar Uppgjörið: Víkingur R. - Fylkir 2-2 | Jafnt í nýliðaslagnum Sjá meira
Blikar unnu 3-2 sigur á Stjörnunni á Kópavogsvellinum í gær og hafa þar með unnið fimm fyrstu leiki sína í Bestu-deildinni. Markatalan er sextán mörk skoruð gegn aðeins fjórum fengnum á sig. Blikar hafa unnið Keflavík, KR, FH, ÍA og svo Stjörnuna í þessum fyrstu leikjum tímabilsins. Það eru liðin sextán ár síðan lið náði slíkri byrjun í efstu deild og þetta er því metbyrjun hjá Breiðabliki í tólf liða deild. Síðasta lið á undan Blikum til að ná fullkominni fimm leikja byrjun voru FH-ingar sumarið 2006. Það FH-lið endaði á því að meistari sem og FH-liðið árið áður sem vann líka fimm fyrstu leiki sína. Sumarið 2005 vann líka annað lið fimm fyrstu leiki sína en það voru Valsmenn. Þeir eru eina liðið ásamt Keflavíkurliðinu sumarið 1997 sem hafa fengið fimmtán stig af fimmtán mögulegum í fyrstu fimm leikjunum en ekki náð að fylgja því eftir og verða Íslandsmeistarar. KR varð fyrsta liðið til að ná þessu sumarið 1959 en það lið vann alla tíu leiki sína á tímabilinu. Frá 1959 til 1995 bættust þrjú lið í hópinn, Keflavík 1973, Valur 1978 og ÍA 1995 en þau unnu öll Íslandsmeistaratitilinn með sannfærandi hætti. Það er ekki nóg með að Blikar hafi unnið fimm fyrstu leiki þessa tímabils því þeir unnu einnig átta af síðustu níu leikjum sumarsins í fyrra. Þetta eina tap kostaði þá titilinn en Blikar eru nú búnir að vinna þrettán af síðustu fjórtán leikjum sínum í efstu deild. Það er því óhætt að segja að Blikar hafi tekið upp þráðinn frá síðasta hausti og eru nú í góðri stöðu á toppi deildarinnar. Í raun allt annarri stöðu en í fyrrasumar þegar liðið vann bara tvo af fyrstu fimm leikjum sínum og var með átta stigum færra eftir jafnmarga leiki og í ár. Lið með fullt hús eftir fimm leiki (Frá því að tvöföld umferð var tekin upp 1959) Breiðablik 2022 (16-4) ??? FH 2006 (11-3) - Varð Íslandsmeistari FH 2005 (15-2) - Varð Íslandsmeistari Valur 2005 (15-3) - 2. sæti Keflavík 1997 (9-1) - 6. sæti ÍA 1995 (10-1) - Varð Íslandsmeistari Valur 1978 (14-5) - Varð Íslandsmeistari Keflavík 1973 (12-1) - Varð Íslandsmeistari KR 1959 (25-3) - Varð Íslandsmeistari
Lið með fullt hús eftir fimm leiki (Frá því að tvöföld umferð var tekin upp 1959) Breiðablik 2022 (16-4) ??? FH 2006 (11-3) - Varð Íslandsmeistari FH 2005 (15-2) - Varð Íslandsmeistari Valur 2005 (15-3) - 2. sæti Keflavík 1997 (9-1) - 6. sæti ÍA 1995 (10-1) - Varð Íslandsmeistari Valur 1978 (14-5) - Varð Íslandsmeistari Keflavík 1973 (12-1) - Varð Íslandsmeistari KR 1959 (25-3) - Varð Íslandsmeistari
Besta deild karla Breiðablik Mest lesið Kelce framlengir og verður launahæsti innherji sögunnar Sport „Þeir voru bara miklu betri í kvöld og áttu sigurinn skilið“ Körfubolti Rúnar Páll: Við eigum þetta ekki skilið en svona er þetta Fótbolti Albert skoraði þegar Genoa gulltryggði sætið í efstu deild Fótbolti „Við eigum að geta varist föstum leikatriðum“ Íslenski boltinn Lopetegui tekur við AC Milan Fótbolti „Skákin er bara byrjuð“ Körfubolti Uppgjör: Valur - Njarðvík 84 - 105 | Deildarmeistararnir fengu kjaftshögg Körfubolti Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Undanúrslit í Meistaradeild Evrópu og Subway-deild karla Sport Fleiri fréttir „Við eigum að geta varist föstum leikatriðum“ „Það er mikill efniviður í Fram“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Uppgjör og viðtöl: Fylkir - Stjarnan 0-1 | Stjörnumenn stálu öllum stigunum „Nú verður Edda brjáluð þegar ég hitti hana næst“ Áfall fyrir Vestra: Eiður Aron brotinn og lengi frá Fyrstir í sautján ár til að vinna fjóra fyrstu leikina tvö ár í röð Tvær skráðar með sama númer á skýrslu og sú rétta fékk ekki markið Saman á ný eftir súrrealískan dag: „Við erum eins og lím við hvorn annan“ Sjáðu dramatíkina í fyrsta grasleiknum á KR-vellinum og öll hin mörkin „Mér leið eins og ég væri í Keanu Reeves mynd“ „Röng ákvörðun af minni hálfu og ég tek fulla ábyrgð“ Uppgjör og viðtöl: KR - Breiðablik 2-3 | Blikar sóttu þrjú stig á grasinu í Vesturbænum „Veit ekki af hverju ég ætti að vera að láta mig detta“ Uppgjör: Víkingur - KA 4-2 | Ekkert fær meistarana stöðvað Davíð Smári: Ekki okkar besta frammistaða Uppgjör og viðtöl: ÍA-FH 1-2 | FH-ingar sóttu sigur á Skagann „Björn Daníel sagði mér að skjóta“ Uppgjör og viðtöl: Vestri - HK 1-0 | Benedikt tryggði Vestra annan sigurinn í röð „Alveg ljóst að fínni blæbrigði knattspyrnurnnar þurfa að víkja“ Spila loks vestur í bæ: „Held það verði fullt í Frostaskjólinu frá hádegi“ Sjáðu ótrúlegan vítadóm í Keflavík og fernu Söndru Maríu Sandra María: Vil gera betur en í fyrra Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór/KA 0-4 | Óvæntur stórsigur gestanna Uppgjör og viðtöl: Breiðablik - Tindastóll 3-0 | Sannfærandi sigur Blika á kraftmiklum Stólum „Við þurfum að þekkja okkar vitjunartíma og taka færin“ Uppgjörið og viðtöl: Þróttur R. - Valur 1-2 | Amanda heldur áfram að skora „Við erum ekki að fara rúlla yfir eitt eða neitt mót“ Sharts í aðalhlutverki í endurkomusigri Stjörnunnar Uppgjörið: Víkingur R. - Fylkir 2-2 | Jafnt í nýliðaslagnum Sjá meira
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn