Búast við mikilli aukningu fjárútláta til varnarmála Samúel Karl Ólason skrifar 26. febrúar 2021 15:46 Kínverskir hermenn í skrúðgöngu. EPA/PAVEL GOLOVKIN Sérfræðingar búast við því að ráðamenn í Kína muni tilkynna töluverða hækkun á fjárútlátum til varnarmála í upphafi nýs þings í næsta mánuði. Hækkunin í fyrra var 6,6 prósent, sem var sú lægsta í áratugi.
Þá var Kína i efnahagslegum vandræðum vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar. Hagkerfi Kína hefur verið að gefa í aftur og þar að auki hefur þrýstingur á ríkið aukist til muna. Þá hefur ríkisstjórn Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, gert ljóst að Bandaríkin ætli sér að standa í vegi Kína og auknum áhrifum þeirra og hernaðaruppbyggingu í Kyrrahafinu og Asíu. Með það í huga, auk annarra ástæðna, búast sérfræðingar við að hækkunin verði há núna. Einn viðmælanda Reuters fréttaveitunnar segir öryggisástand Kína ekki hafa verið jafn alvarlegt síðan í Kóreustríðinu. Sá heitir Ni Lexiong og er fyrrverandi prófessor við Stjórnmála- og lögfræðiháskóla Sjanghæ. Hann vísaði til siglinga bandarískra herskipa og flugmóðurskipa undan ströndum Kína, franskra herskipa og kafbáta í Suður-Kínahafi, sem Kína hefur gert ólöglegt tilkall til, og vopnasölu Bandaríkjanna til Kína. Ni sagði einnig að það hefði aldrei verið jafn áríðandi fyrir Kína að taka Taívan með hervaldi. Þess vegna spáir hann verulegri aukningu til varnarmála í Kína. Yfirlýst fjárútlát Kína til varnarmála árið 2019 var 174 milljarðar dala, eða um 1,3 prósent af vergri landsframleiðslu samkvæmt frétt Reuters. Greinendur og sérfræðingar segja raunverulega upphæð vera mun hærri en það og allt að 261 milljarði. Árið 2019 vörðu Bandaríkin 732 milljörðum dala til varnarmála, eða um 3,4 prósentum af vergri landsframleiðslu. Yfirvöldum í Kína hefur tekist að nútímavæða herafla landsins hratt á undanförnum árum. Þá hefur það verið gert tiltölulega ódýrt þar sem ríkið hefur sleppt töluverðum kostnaði við rannsóknir og þróunarvinnu. Samhliða þessu hefur tiltrú ráðamanna á getu heraflans aukist verulega.
Kína Bandaríkin Taívan Tengdar fréttir Lýsir áhyggjum af viðbúnaði Kínverja Tsai Ing-wen, forseti Taívans, lýsti í dag áhyggjum af sífelldu flugi kínverska hersins nærri eyjunni og sagði það ógna öryggi á svæðinu. 9. febrúar 2021 16:00 Kalla Pompeo rottu og saka hann um að skemma samskipti Kína og Bandaríkjanna Ráðamenn í Kína segja Mike Pompeo, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafa lagt stein í götu Kommúnistaflokks Kína og nýrrar ríkisstjórnar Joe Bidens. Það hafi hann gert með því að saka yfirvöld Kína um þjóðarmorð gegn Úígúrum í Xinjianghéraði. 1. febrúar 2021 12:37 Eins og nýjasti þátturinn í gamalli sjónvarpsseríu Stjórnvöld í Kína vara við stríði ef yfirvöld í Taívan sækja í átt að sjálfstæði. Alþjóðastjórnmálafræðingur segir Kínverja vera að þreifa fyrir sér. 29. janúar 2021 20:00 „Sjálfstæði Taívans þýðir stríð“ Yfirvöld Kína hafa hert orðræðu sína gagnvart Taívan töluvert. Í dag varaði talsmaður varnarmálaráðuneytis Kína við því að ef ráðamenn í Taívan lýstu yfir sjálfstæði, þýddi það stríð milli ríkjanna. 28. janúar 2021 13:36 Hersveitir hörfa frá umdeildu stöðuvatni Indverskar og kínverskar hersveitir hafa hörfað frá landsvæði við stöðuvatnið Pangong í Himalaja-fjallgarðinum á landamærum ríkjanna. Mikil spenna hefur verið á svæðinu síðustu mánuði, en ríkin hafa lengi deilt um hvar landamærin skuli liggja. 22. febrúar 2021 08:21 Vilja múlbinda bloggara og áhrifavalda í Kína Kínverskir bloggarar og áhrifavaldar munu í næstu viku þurfa leyfi frá yfirvöldum landsins til að tjá sig um ýmis málefni. Markmið þessarar herferðar er að stýra almenningsáliti í Kína. 17. febrúar 2021 11:52 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Innlent Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Innlent Fleiri fréttir Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Sjá meira
Lýsir áhyggjum af viðbúnaði Kínverja Tsai Ing-wen, forseti Taívans, lýsti í dag áhyggjum af sífelldu flugi kínverska hersins nærri eyjunni og sagði það ógna öryggi á svæðinu. 9. febrúar 2021 16:00
Kalla Pompeo rottu og saka hann um að skemma samskipti Kína og Bandaríkjanna Ráðamenn í Kína segja Mike Pompeo, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafa lagt stein í götu Kommúnistaflokks Kína og nýrrar ríkisstjórnar Joe Bidens. Það hafi hann gert með því að saka yfirvöld Kína um þjóðarmorð gegn Úígúrum í Xinjianghéraði. 1. febrúar 2021 12:37
Eins og nýjasti þátturinn í gamalli sjónvarpsseríu Stjórnvöld í Kína vara við stríði ef yfirvöld í Taívan sækja í átt að sjálfstæði. Alþjóðastjórnmálafræðingur segir Kínverja vera að þreifa fyrir sér. 29. janúar 2021 20:00
„Sjálfstæði Taívans þýðir stríð“ Yfirvöld Kína hafa hert orðræðu sína gagnvart Taívan töluvert. Í dag varaði talsmaður varnarmálaráðuneytis Kína við því að ef ráðamenn í Taívan lýstu yfir sjálfstæði, þýddi það stríð milli ríkjanna. 28. janúar 2021 13:36
Hersveitir hörfa frá umdeildu stöðuvatni Indverskar og kínverskar hersveitir hafa hörfað frá landsvæði við stöðuvatnið Pangong í Himalaja-fjallgarðinum á landamærum ríkjanna. Mikil spenna hefur verið á svæðinu síðustu mánuði, en ríkin hafa lengi deilt um hvar landamærin skuli liggja. 22. febrúar 2021 08:21
Vilja múlbinda bloggara og áhrifavalda í Kína Kínverskir bloggarar og áhrifavaldar munu í næstu viku þurfa leyfi frá yfirvöldum landsins til að tjá sig um ýmis málefni. Markmið þessarar herferðar er að stýra almenningsáliti í Kína. 17. febrúar 2021 11:52