Fimm inniliggjandi á LSH vegna Covid

Ljósmynd/Landspítali

Fimm einstaklingar eru nú inniliggjandi á Landspítala vegna Covid-19. Þeir voru fjórir fyrir helgi. Enginn er á gjörgæslu eða í öndunarvél. 

Þetta kemur fram á vefsíðu Landspítala.

Þrír sjúklinganna eru með virkt smit og því í einangrun. 

Þá eru 175 sjúklingar í eftirliti Covid-19 göngudeildar, þar af 51 barn. 

Ekkert andlát hefur orðið á Landspítala í fjórðu bylgju sem hófst 20. mars sl. 

Landspítali er á óvissustigi vegna faraldursins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert