Kanadamenn „uppfærðu“ Víkingaklappið og eru komnir inn á topp fimmtíu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. október 2021 11:01 Stjörnuleikmaðurinn Alphonso Davies með trommuna í Víkingaklappi Kanadamanna. Getty/Vaughn Ridley Kanadamenn hafa þotið upp styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins eftir mjög gott gengi í undankeppni HM og komust í gær í hóp fimmtíu bestu landsliða heims í fyrsta sinn í 24 ár.
Kanadíska landsliðið er komið upp í 48. sæti FIFA-listans eftir að hafa byrjað árið í 72. sætið. Þegar árið 2021 rann í garð þá voru Kanadamenn 26 sætum á eftir íslenska landsliðinu en núna eru þeir komnir fjórtán sætum fyrir ofan íslenska landsliðið á listanum en október útgáfa hans var gefin út í gær. For the first time since 1997, Canada have entered the top 50 in FIFA s men s world rankings. They started the year in 72nd place and have since jumped to 48th pic.twitter.com/Ivfu7cAyBY— B/R Football (@brfootball) October 21, 2021 Í kanadíska landsliðinu eru nokkrir ungir og spennandi leikmenn eins og til dæmis hinn eldfljóti Alphonso Davies hjá Bayern München, Jonathan David hjá Lille og Tajon Buchanan hjá New England Revolution. Þeir skoruðu allir í síðasta sigurleik liðsins í undankeppni HM. Kanadíska landsliðið er enn taplaust í undankeppni HM en hefur gert fjögur jafntefli í sex leikjum sínum í úrslitariðli Norður- og Mið-Ameríku þar sem þrjár efstu þjóðirnar fara beint á HM. Kanada er eins og er í þriðja sæti, stigi á eftir Bandaríkjamönnum og fjórum stigum á eftir toppliði Mexíkó. Panama er síðan tveimur stigum á eftir Kanada í fjórða sæti en það gefur sæti í Álfu-umspilinu. Það er líka athyglisvert að Kanadamenn hafa tekið ástfóstri við Víkingaklappið sem íslensku strákarnir gerðu heimsfrægt á EM sumarið 2016. Kanadamenn hafa reyndar „uppfært“ Víkingaklappið aðeins því tromman er kominn niður á gras og það er einn leikmaður liðsins sem slær taktinn. Þetta má meðal annars sjá hér fyrir neðan eftir 4-1 sigurleik á móti Panama. Það er einmitt umræddur Alphonso Davies sem slær taktinn þarna á trommunni. <a href="https://www.youtube.com/watch?v=sJzGv39rr38">watch on YouTube</a>
HM 2022 í Katar Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Körfubolti Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Handbolti Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti Leikmaður Newcastle tók meirapróf Enski boltinn Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport Liverpool nær samkomulagi um Slot Enski boltinn Fleiri fréttir Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Ungstirnið nýtti tækifærið og skaut Real nær titlinum Íslendingarnir nálgast fallið Titilbaráttan endanlega úti eftir tap Söru og stallna Íslendingarnir áberandi í jafntefli Fékk prófessorsnafnið frá Gaupa: „Ég er bölvaður nörd“ Marta hættir í landsliðinu eftir Ólympíuleikana Víkingar fengu góða sumargjöf Leikmaður Newcastle tók meirapróf Amnesty segir að FIFA rúlli út rauða dreglinum fyrir Sádana Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Rashford: Nú er nóg komið Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Sjá meira