Þorsteinn: Við viljum fara á HM og því ætlum við að vinna í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. október 2021 12:01 Íslensku stelpurna fagna hér marki á móti Írlandi á Laugardalsvellinum í sumar. Vísir/Hulda Margrét Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu spilar í kvöld gríðarlega mikilvægan leik í undankeppni HM þegar Tékkar mæta á Laugardalsvöllinn. Þetta er leikur sem má ekki tapast og verður helst að vinnast ætli stelpurnar okkar að komast á HM í fyrsta skiptið.
Þorsteinn Halldórsson stýrir íslenska liðinu þarna í annað skiptið í keppnisleik en fyrsti leikurinn tapaðist á móti Evrópumeisturum Hollands í síðasta mánuði. Hann segir ástandið á liðinu gott og nú snúist þetta mikið um hugrekki. „Þetta hefur bara gengið vel og rúllað ágætlega. Ég held að þetta hafi verið góður undirbúningur og að við komust í góðan leik á morgun (í kvöld),“ sagði Þorsteinn Halldórsson í samtali við Svövu Kristínu Grétarsdóttur. „Það eru allar stelpurnar í fínu standi og allar klárar í þetta. Ég hef ekkert að óttast varðandi hópinn eða liðið sem er að fara að spila,“ sagði Þorsteinn. Íslenska liðið tapaði 2-0 á móti Hollandi og þarf væntanlega að spila betur í leiknum í kvöld. „Auðvitað er maður alltaf að leita að hinum fullkomna fótboltaleik og það er alveg sama hvernig gengur því maður leitar alltaf að einhverju hlutum sem hægt er að laga. Maður fer líka yfir það sem vel er gert. Það verður að vera jafnvægi og að fara í gegnum báða þætti, hvort sem það var vel gert eða hvort að það þurfi að laga eitthvað,“ sagði Þorsteinn en verður liðið ekki að vinna í kvöld? Klippa: Viðtal við Þorstein Halldórsson fyrir Tékkaleik „Ef við setjum þetta í samhengi þá viljum við fara á HM og þá ætlum við að vinna á morgun (í kvöld). Það er okkar markmið og það verður alltaf þannig að við ætlum að vinna leiki sem við förum í. Svo þurfum við bara að taka því sem kemur út úr þessu. Í grunninn þá erum við að undirbúa okkur það vel og spila það vel að við munum vinna,“ sagði Þorsteinn. „Við ætlum að mæta til leiks í góðri stemmningu, spila þétt og agað og með hugrekki og krafti. Við þurfum að þora að vera við sjálf inn á vellinum og þora að vera betra liðið á vellinum,“ sagði Þorsteinn. Tékkneska liðið er þegar búið að taka stig af Evrópumeisturum Hollands í riðlinum. „Miðað við leikinn á móti Hollandi þá voru þær mjög þéttar til baka. Þær spiluðu agaðan og skipulagðan varnarleik og beittu skyndisóknum. Þær gerðu það vel. Þær skoruðu eitt mark og annað mark var dæmt af þeim sem var vafasamt,“ sagði Þorsteinn „Þær sýndu að þær eru lið sem eru tilbúið að þurfa verjast mikið en í öðrum leikjum hafa þær líka verið tilbúnar að vera með boltann og sækja á mörgum mönnum líka. Við þurfum að vera undirbúin fyrir alla þessa þætti og tilbúnar að bregðast við sem kemur upp inn á vellinum,“ sagði Þorsteinn. Það má horfa á allt viðtalið hér fyrir ofan. Leikur Íslands og Tékklands hefst klukkan 18.45 á Laugardalsvellinum í kvöld.
HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ Körfubolti Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Körfubolti Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Fótbolti Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Amnesty segir að FIFA rúlli út rauða dreglinum fyrir Sádana Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Rashford: Nú er nóg komið Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Krókur Liverpool á móti bragði Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Sjá meira