„Spáin núna ætti eiginlega að heita vondur, verri, verstur“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir og Viktor Örn Ásgeirsson skrifa 13. janúar 2022 20:32 Hildur Helgadóttir verkefnastjóri farsóttanefndar Landspítala Vísir/Egill Bjartsýnasta spá Landspítala um innlagnir á legudeild vegna Covid-19 virðist nú vera að rætast. Verkefnastjóri hjá farsóttanefnd Landspítala segir orðalagið um bjartsýna spá villandi og telur nauðsynlegt að herða takmarkanir.
Hildur Helgadóttir, verkefnastjóri hjá farsóttanefnd Landspítala, segir ástandið á spítalanum slæmt. Samkvæmt bjartsýnisspá var gert ráð fyrir að tæplega sextíu sjúklingar yrðu inniliggjandi á Landspítala vegna kórónuveirunnar fyrir 20. janúar næstkomandi. Svartsýnasta spá spítalans gerði hins vegar ráð fyrir að allt að níutíu manns yrðu inniliggjandi. „Það er raunveruleg þörf vegna þess að þetta orðfæri að tala um bjartsýna spá er í raun og veru ekki gott, það er mismunandi. Spáin núna ætti eiginlega að heita vondur, verri, verstur. Og vonda spáin, sem er þá þessi svokallaða bjartsýnisspá, hún gerir ráð fyrir milli fimmtíu til sextíu inniliggjandi eftir viku og tíu á gjörgæslu og það er allt of mikið,“ segir Hildur. Aðspurð telur Hildur að auknar takmarkanir þurfi til að Landspítali ráði við álagið. Að óbreyttu stefni í algjört neyðarástand í heilbrigðiskerfinu. „Það er okkar mat að það sé það eina sem hægt er að gera. Það er að kæla niður samfélagið, það er að minnka umferðina, og það er til þess að ná smitunum niður úr þessum 1200 því þau leið til allt of margra innlagna. Þannig að við þurfum að ná þeim niður í svona 500 og það verður ekki gert öðruvísi en með hertum takmörkunum,“ segir Hildur Helgadóttir verkefnastjóri hjá farsóttanefnd Landspítala. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir skilaði minnisblaði til heilbrigðisráðherra í dag en vill ekkert gefa upp um innihald þess að svo stöddu. Talið hefur verið líklegt sóttvarnalæknir leggi til hertar aðgerðir vegna faraldursins.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Landspítalinn Samkomubann á Íslandi Heilbrigðismál Tengdar fréttir Spítalinn þoli ekki tvo daga í viðbót í óbreyttu ástandi Sóttvarnalæknir segir að óbreyttu stefna í algjört neyðarástand í heilbrigðiskerfinu. Búast megi við yfir þúsund smitum á dag út mánuðinn sem Landspítalinn segist engan veginn ráða við. Stjórnvöld framlengdu samkomutakmarkanir um þrjár vikur í dag. 11. janúar 2022 19:56 „Náum þessu niður áður en við göngum af heilbrigðiskerfinu dauðu“ Formaður Læknafélags Íslands og formaður Félags hjúkrunarfræðinga kalla eftir því að stjórnvöld bregðist við því mikla álagi sem sé á heilbrigðisstarfsfólk, til dæmis með tímabundnum álagsgreiðslum í faraldrinum. Ekki sé hægt að leggja það á fólk árum og mánuðum saman að einangra sig og vinni ítrekað langt um fram eðlilega vinnuskyldu. 13. janúar 2022 19:16 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Erlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Innlent Fleiri fréttir Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Fleiri löggur á leiðinni Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti Sjá meira
Spítalinn þoli ekki tvo daga í viðbót í óbreyttu ástandi Sóttvarnalæknir segir að óbreyttu stefna í algjört neyðarástand í heilbrigðiskerfinu. Búast megi við yfir þúsund smitum á dag út mánuðinn sem Landspítalinn segist engan veginn ráða við. Stjórnvöld framlengdu samkomutakmarkanir um þrjár vikur í dag. 11. janúar 2022 19:56
„Náum þessu niður áður en við göngum af heilbrigðiskerfinu dauðu“ Formaður Læknafélags Íslands og formaður Félags hjúkrunarfræðinga kalla eftir því að stjórnvöld bregðist við því mikla álagi sem sé á heilbrigðisstarfsfólk, til dæmis með tímabundnum álagsgreiðslum í faraldrinum. Ekki sé hægt að leggja það á fólk árum og mánuðum saman að einangra sig og vinni ítrekað langt um fram eðlilega vinnuskyldu. 13. janúar 2022 19:16