Átti í heimiliserjum rétt áður en hann varð fimm að bana Eiður Þór Árnason skrifar 22. nóvember 2021 23:46 Brotin barnakerra liggur á götu í miðbæ Waukesha þar sem Brooks keyrði í gegnum skrúðgönguna. Ap/John Hart Ökumaður sem varð fimm að bana þegar hann ók jeppa inn í jólaskrúðgöngu í Wisconsin í Bandaríkjunum í gær hafði nýlega átt í heimiliserjum þegar atvikið átti sér stað.
Talið er að minnst 48 hafi slasast þegar hinn 39 ára gamli Darrell Brooks Jr. keyrði í gegnum vegatálma og inn í mannþvöguna í borginni Waukesha. Fram kom á blaðamannafundi lögreglu í kvöld að ekkert benti til þess að um hryðjuverkaárás væri að ræða eða að hinn grunaði hafi þekkt einhvern í skrúðgöngunni sem hann vildi slasa. Telur lögregla að Brooks hafi verið einn að verki og hyggst ákæra hann fyrir að hafa myrt hina fimm látnu. Um er að ræða fjórar konur á aldrinum 52 til 79 ára og 81 árs karlmann. Skaut í átt að bifreiðinni Að sögn lögreglu hafði Brooks yfirgefið heimiliserjur skömmu áður en lögregla kom á vettvang. Hann hafi þó ekki verið eltur af lögreglu þegar hann keyrði inn í skrúðgönguna. Lögregluyfirvöld vildu ekki veita frekari upplýsingar um eðli heimiliserjanna. Eftir að ljóst var í hvað stefndi skaut lögreglumaður í átt að Brooks til að reyna að stöðva för hans en hætti til að leggja fólk ekki í aukna hættu. Skotið eina hæfði ekki Brooks. Brooks á að baki sextán ákærur frá árinu 1999. Rannsókn stóð yfir í tveimur málum sem varða hann þegar atvikið átti sér stað í gær. Í tengslum við annað þeirra er hann sakaður um að hafa keyrt bifreið sinni vísvitandi á konu að loknu rifrildi þeirra með þeim afleiðingum að hún var lögð inn á spítala.
Bandaríkin Tengdar fréttir Kanna hvort ökumaðurinn hafi verið á flótta eftir glæp Lögregluþjónar í Waukesha í Wisconsin í Bandaríkjunum rannsaka hvort maðurinn sem ók jeppa inn í jólaskrúðgöngu í gær hafi verið að flýja vettvang glæps. Minnst fimm dóu og rúmlega fjörutíu er slasaðir eftir að maðurinn ók inn í þvögu fólks. 22. nóvember 2021 14:05 Fimm látnir eftir að jeppi ók inn í jólaskrúðgöngu Fimm eru látnir og rúmlega fjörutíu slasaðir eftir að jeppi ók inn í jólaskrúðgöngu í Wisconsin í Bandaríkjunum. Atburðurinn átti sér stað í borginni Waukesha sem er í grennd við Milwaukee. 22. nóvember 2021 06:40 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Fleiri fréttir „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Sjá meira
Kanna hvort ökumaðurinn hafi verið á flótta eftir glæp Lögregluþjónar í Waukesha í Wisconsin í Bandaríkjunum rannsaka hvort maðurinn sem ók jeppa inn í jólaskrúðgöngu í gær hafi verið að flýja vettvang glæps. Minnst fimm dóu og rúmlega fjörutíu er slasaðir eftir að maðurinn ók inn í þvögu fólks. 22. nóvember 2021 14:05
Fimm látnir eftir að jeppi ók inn í jólaskrúðgöngu Fimm eru látnir og rúmlega fjörutíu slasaðir eftir að jeppi ók inn í jólaskrúðgöngu í Wisconsin í Bandaríkjunum. Atburðurinn átti sér stað í borginni Waukesha sem er í grennd við Milwaukee. 22. nóvember 2021 06:40