Fótbolti

Zlatan er hættur: „Í dag er Guð leiður“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Zlatan var hylltur í lok leiks AC Milan og Verona á San Siro í kvöld.
Zlatan var hylltur í lok leiks AC Milan og Verona á San Siro í kvöld. Vísir/Getty

Zlatan Ibrahimovic var hylltur í lok leiks AC Milan og Verona á San Siro í kvöld. Í ræðu hans eftir leik kvaddi hann fótboltann og hann staðfesti á blaðamannafundi nú í kvöld að ferillinn er á enda.

AC Milan lék lokaleik sinn á tímabilinu í kvöld þegar liðið vann 3-1 sigur á Verona. Zlatan Ibrahimovic var ekki í leikmannahópi Milan vegna meiðsla en ljóst var fyrir leik að hann yrði ekki leikmaður liðsins á næsta tímabili.

Zlatan var hylltur af stuðningsmönnum AC Milan fyrir leik og mátti sjá tár á hvarmi hjá Svíanum sem á magnaðan feril að baki. Að leik loknum kom Zlatan síðan niður á völl þar sem liðsfélagar hans fögnuðu honum og hann hélt ræðu þar sem hann kvaddi stuðningsmenn.

„Það er kominn tími til að segja bless við fóboltann en ekki við ykkur. Það eru svo maragar minningar og tilfinningar tengdar við þennan völl. Í fyrsta skiptið sem ég kom til Milan færðuð þið mér hamingju, í annað skiptið ást,“ sagði Zlatan sem hélt blaðamannafund eftir leik þar sem hann staðfesti að ferillinn væri á enda.

Hélt ákvörðunnni leyndri fyrir fjölskyldunni

Hann þakkaði blaðamönnum fyrir þolinmæðina sem þeir hafa sýnt honum og sagði að þeir myndu hafa minna að gera frá og með morgundeginum. Hann hélt því leyndu fyrir fjölskyldu sinni að hann ætlaði að hætta.

„Frá og með morgundeginum er ég frjáls maður. Fjölskylda mín vissi ekki einu sinni af þessu,“ sagði Svíinn.

„Í dag er Guð leiður,“ bætti hann við en Zlatan hefur alltaf verið óhræddur við að láta stór orð falla.

„Í gegnum fótboltann hef ég hitt fólk og ferðast um allan heim, þökk sé fótboltanum. Það eru miklar tilfinningar. Milan hefur fært mér gleði og síðan hamingju. Mér hefur liðið eins og heima hjá mér síðan á fyrsta degi.“


Tengdar fréttir

Zlatan táraðist á kveðju­stundinni

Síðustu leikirnir í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á þessu tímabili fara fram nú í kvöld. Stuðningsmenn AC Milan kvöddu Zlatan Ibrahimovic fyrir leik liðsins gegn Verona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×