Sigyn Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hugbúnaðarþróunar hjá Empower og mun leiða þróun jafnréttishugbúnaðarins Empower Now. Hún kemur til Empower frá hugbúnaðarfyrirtækinu Men&Mice þar sem hún gegndi stöðu forstöðumanns þjónustu og ráðgjafar til viðskiptavina.

Sigyn er varaformaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs og var formaður Ungra athafnakvenna (UAK) árin 2017-2019. Hún hefur einnig starfað hjá Meniga og Seðlabanka Íslands.

Sjá einnig: 300 milljónir í jafnréttisútrás

Sigyn er með B.Sc. í hugbúnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. í Management Science & Engineering frá Columbia-háskóla í New York.

Þórey Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri Empower:

„Við erum afar ánægð með að fá Sigyn í stjórnendateymi Empower en hún mun sinna einu mikilvægasta verkefni okkar á næstu misserum – hugbúnaðarþróuninni. Fyrir utan víðtæka reynslu við hugbúnaðargerð, nýsköpun og teymisstjórnun þá hefur hún einnig mikla ástríðu fyrir jafnréttismálum. Það er mikill fengur fyrir okkur að fá jafn öfluga konu og Sigyn inn í stjórnendateymið og við hlökkum til að vinna með henni að frekari þróun Empower Now.“

Sigyn Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hugbúnaðarþróunar Empower:

„Ég hef lengi verið aðdáandi Empower og hrifist af þeirra einstöku nálgun á jafnréttismál og vinnustaðamenningu. Ég er virkilega spennt að ganga til liðs við svo framsýnt nýsköpunarfyrirtæki og hlakka til að byggja upp fjölbreytt og skapandi hugbúnaðarteymi. Að leiða þróun á lausn sem þjónar göfugum tilgangi er einstakt tækifæri fyrir mig og sameinar reynslu mína úr hugbúnaðargeiranum við ástríðuna fyrir jafnréttismálum.“