Líkir myndbirtingu Sigurðar G við áður séða þöggunartilburði Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 21. janúar 2022 19:51 Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir segir mynd af Vítalíu Lazarevu, sem Sigurður G. Guðjónsson kveðst ekki kannast við, líkjast þöggunartilburðum. Vísir/Samsett Hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson tekur fyrir að hafa birt mynd af Vítalíu Lazarevu hjá sér á Facebook. Myndina var þó að finna á Facebook-síðu hans í morgun. Talskona Stígamóta segir myndbirtinguna líkjast þöggunartilburðum.
Vítalía, sem hefur sakað þjóðþekkta menn um kynferðisofbeldi, vakti sjálf athygli á mynddeilingunni á Twitter og furðaði sig á því að Sigurður, sem hún segist ekkert þekkja, hafi birt af henni mynd á Facebook. Hún hafi á myndinni verið að ganga inn á fund með sínum eigin lögmanni. Það er ekkert spes að lögfræðingur sem ég þekki ekki baun í bala taki mynd af mér þegar ég er að labba inn á fund að hitta minn lögmann .... Það sem er ennþá meira spes er að hann póstar myndinni á Facebookið sitt.HJÁLP pic.twitter.com/y8tsWwVrkK— Vitalia Lazareva (@LazarevaVitalia) January 21, 2022 „Það er náttúrulega mjög íþyngjandi að upplifa það að það sé verið að fylgjast með manni. Sérstaklega ef maður er hræddur við aðilann sem kann að vera að fylgjast með manni eða senda einhvern til að fylgjast með manni,“ segir Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, talskona Stígamóta. Í samtali við fréttastofu fyrr í dag sagðist Sigurður ekki kannast við að hafa birt myndina á Facebook og sagðist heldur ekki hafa verið á staðnum þegar myndin var tekin. Í morgun mátti þó sjá myndina á Facebook-síðu Sigurðar. Sigurður fjarlægði myndina af Facebook eftir hádegi í dag. „Það er kannski erfitt að festa fingur á það nákvæmlega, hvað þetta er, en í öllu falli finnst mér þetta líkjast mjög ýmsum þöggunartilburðum sem við höfum áður séð,“ segir Steinunn. Við það bætist að meintir gerendur í málinu séu allir valdamiklir menn. „Ég held að það sé alveg aukalag af ótta sem fylgir því að stíga fram gegn mjög valdamiklum mönnum sem eru í allt annarri stöðu en brotaþoli.“ Sigurður hefur áður verið á milli tannanna á fólki vegna umdeildrar Facebook-færslu þar sem hann birti ljósmyndir af skýrslum lögreglu af Þórhildi Gyðu Arnarsdóttur, sem sakaði Kolbein Sigþórsson knattspyrnumann um ofbeldi. „Það er óhjákvæmilegt að setja það í samhengi við það sem sami maður hefur gert áður, þar sem hann birtir lögregluskýrlsur brotaþola opinberlega á Facebook.“ Sigurður Örn Hilmarsson, formaður Lögmannafélags Íslands, segir í samtali við fréttastofu að félaginu hafi borist athugasemdir í dag vegna málsins sem það muni taka til skoðunar.
Mál Vítalíu Lazarevu MeToo Kynferðisofbeldi Samfélagsmiðlar Tengdar fréttir Vill ekki kannast við myndina sem hann birti af Vítalíu Hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson segist ekki hafa tekið mynd af Vítalíu Lazarevu og birt í „story“ hjá sér á Facebook. Myndina var þó að finna á Facebook-síðu hans í morgun. Vítalía hefur sakað nafntogaða og þjóðþekkta menn um kynferðisofbeldi. 21. janúar 2022 11:33 Facebook-skrifum Sigurðar G. um Þórhildi Gyðu vísað frá úrskurðarnefnd Úrskurðarnefnd lögmanna hefur vísað kvörtun Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur vegna skrifa hæstaréttarlögmannsins Sigurðar G. Guðnasonar á Facebook frá nefndinni. 15. desember 2021 19:08 Þórhildur Gyða hefur kært Sigurð G. vegna umdeildrar Facebook-færslu Þórhildur Gyða Arnarsdóttir hefur kært hæstaréttarlögmanninn Sigurð G. Guðjónsson til lögreglu, Persónuverndar og Lögmannafélags Íslands fyrir að hafa birt myndir úr lögregluskýrslu hennar. Þetta staðfestir lögmaður Þórhildar í samtali við Vísi. 24. september 2021 17:18 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Erlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Fleiri fréttir Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg „Ríkisfjármálin eru í ruglinu“ Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina Orkuveitan skilar Elliðaárdalnum Stuðningsmenn Katrínar áhugasamari en aðrir Lengri lokun þar sem kerfið hefur „hangið á bláþræði“ Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Nýborin lömb finnist dauð og deyjandi úr vosbúð „Hef haft áhyggjur af fangelsismálum frá því ég kom í embætti“ „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Kannabis en ekki kjólar í kassanum Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni tókust á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Bein útsending: Bjarkey kynnir lagareldisfrumvarpið Neyðast óvænt til að tæma laugina Bein útsending: Þrjátíu ár af EES-samstarfi Drógu fiskibát sem fékk veiðarfæri í skrúfuna til hafnar Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Stjórn Íslensku óperunnar afar gagnrýnin á frumvarp um Þjóðaróperu Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Sjá meira
Vill ekki kannast við myndina sem hann birti af Vítalíu Hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson segist ekki hafa tekið mynd af Vítalíu Lazarevu og birt í „story“ hjá sér á Facebook. Myndina var þó að finna á Facebook-síðu hans í morgun. Vítalía hefur sakað nafntogaða og þjóðþekkta menn um kynferðisofbeldi. 21. janúar 2022 11:33
Facebook-skrifum Sigurðar G. um Þórhildi Gyðu vísað frá úrskurðarnefnd Úrskurðarnefnd lögmanna hefur vísað kvörtun Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur vegna skrifa hæstaréttarlögmannsins Sigurðar G. Guðnasonar á Facebook frá nefndinni. 15. desember 2021 19:08
Þórhildur Gyða hefur kært Sigurð G. vegna umdeildrar Facebook-færslu Þórhildur Gyða Arnarsdóttir hefur kært hæstaréttarlögmanninn Sigurð G. Guðjónsson til lögreglu, Persónuverndar og Lögmannafélags Íslands fyrir að hafa birt myndir úr lögregluskýrslu hennar. Þetta staðfestir lögmaður Þórhildar í samtali við Vísi. 24. september 2021 17:18