Orkudrykkjaframleiðandinn Red Bull hefur birt rúmlega 8 mínútna myndskeið á samfélagsmiðlum sem sýnir japanska skíðastökkvarann Ryoyu Kobayashi stökkva 291 metra í Hlíðarfjalli á Akureyri.
Stökkið er yfir núgildandi heimsmeti, þó það gildi ekki beint sem slíkt.
Stökkpallurinn var unninn af verkfræðistofunni Cowi á Akureyri í samstarfi við orkudrykkjaframleiðandann Red Bull. Stökkið var hluti af auglýsingaherferð Red Bull en slagorð þeirra vísar til þess að orkudrykkurinn gefi vængi.
Í myndskeiðinu má sjá undirbúninginn að gerð stökkpallsins sem og undirbúning skíðastökkvarans.
Mikil spenna er í myndskeiðinu sem nær hápunkti undir lokin þegar hann nær að stökkva 291 metra. Gildandi heimsmet í skíðastökki er 253,3 metrar.
Heimsmetið hefur ekki verið staðfest og verður ekki staðfest samkvæmt Alþjóðlega skíða-, og snjóbrettasambandinu (FIS) þar sem öll heimsmet eru metin út frá stöðlum og reglugerðum FIS til þess að tryggja að allir sem reyni að slá slíkt met geri það í sambærilegum aðstæðum.
„Stökk Ryoyu Kobayashi á Íslandi fór ekki fram við keppnisaðstæður í samræmi við FIS reglugerðir. Það sýnir aftur á móti ótrúlega frammistöðu íþróttamanns við mjög sérstakar aðstæður en ekki er hægt að líkja þeim við FIS-heimsmeistarakeppnina í skíðaflugi, þar sem bæði upphafsdagsetning og verkefnið í heild sinni er sérsniðið að einum íþróttamanni,“ segir á vefsíðu FIS.