Máté: Við vinnum engan þegar við skjótum 17 prósent og vælum, þetta er helvíti einfalt! Siggeir Ævarsson skrifar 23. mars 2023 22:49 Maté Dalmay var ekki sáttur við hversu linir og vælandi hans menn voru í kvöld Vísir / Hulda Margrét Máté Dalmay, þjálfari Hauka, var ómyrkur í máli eftir tap hans manna gegn Grindavík í Subway-deild karla í kvöld.
Haukur brutu aðeins tólf sinnum af sér í leiknum í kvöld og virtust hreinlega ekki átta sig á þeirri línu sem dómaratríóið lagði upp með. Máté tók undir að hans menn hefðu einfaldlega verið alltof linir í kvöld. „Jú og sérstaklega í fyrri hálfleik. Pikkuðum þetta aðeins upp í seinni. Aðallega í vörn, vorum með fjórar villur í hálfleik og það er náttúrulega bara óafsakanlegt. Við erum bara ekkert eðilega „soft“ og ég þakka kærlega fyrir að hafa fengið þennan leik tveimur vikum fyrir úrslitakeppnina. Þetta er nær því sem við þurfum að venjast þar.“ Þá vorum við voðalega hissa að það mætti berja hérna mann og annan og það var ekkert dæmt á það „Við föllum bara algjörlega á þessu líkamlega prófi sérstaklega sóknarlega. Látum ýta okkur út úr öllu og vælum yfir öllu. Það þarf að breytast. Kannski ekki frábært að fá Blikana í næsta leik því það verður ekki sama líkamlega „level“, það var allavega ekki þannig á móti þeim síðast. En þeir ýta okkur út úr öllu og við vældum og lömdum þá ekki til baka fyrr en í restina. Þá vorum við voðalega hissa að það mætti berja hérna mann og annan og það var ekkert dæmt á það.“ Það er staðreynd að leikurinn breytist töluvert þegar komið er í úrslitakeppnina. Þá tekur alvaran við og dómarar eiga það til að gleypa flautuna og leyfa mönnum að takast aðeins á. Máté sagði að það væru nokkir leikmenn í hans liði sem væru ekki vanir þessari hörku og þeir þyrftu að vera fljótir að læra. „Kaninn, og Giga og kannski Orri og strákarnir á bekknum eru kannski að spila á þessu líkamlega „leveli“ í fyrsta sinn og þeir þurfa að aðlagast helvíti fljótt. Hilmar Smári og Daniel Mortensen sáu þetta svo sem í fyrra, en þeir geta ekki látið ýta sér aftur út núna eins og í fyrra.“ Norbertas Giga virtist láta mótlætið fara töluvert í taugarnar á sér og var nokkuð langt frá sínu besta í kvöld. „Auðvitað fer í taugarnar á þér þegar allt er erfitt og þú ert bömpaður allsstaðar og þér er haldið allsstaðar en svona er þetta bara. Það er ástæða fyrir því að leikir í úrslitakeppninni fara sjötíu og eitthvað - sjötíu og eitthvað, og mér fannst línan vera þannig í dag. Það er miklu erfiðara að skora þegar allir fá að lemja alla.“ „En aftur á móti þegar við skjótum 17 prósent þá vinnum við eiginlega engin lið. Það voru mörg góð skot, sum í fyrri hálfleik voru alveg hræðileg, af driplinu og eitthvað bull. En sérstaklega í seinni hálfleik, þegar við vorum að hóta því að koma til baka og boltinn skrúfast upp úr í galopnum skotum. Við vinnum engan þegar við skjótum 17 prósent og vælum, þetta er helvíti einfalt!“ Þú kennir ekki mönnum að berja hvern annan á æfingu þegar þú ert ekki með tíu skeggjaða menn sem að gera það alla daga „Ef að við rífum okkur í gang varðandi þetta líkamlega „level“, þetta er eitthvað sem er ekkert hægt að þjálfa, sérstaklega ekki þegar þú ert með helvíti ungt lið eins og ég. Þú kennir ekki mönnum að berja hvern annan á æfingu þegar þú ert ekki með tíu skeggjaða menn sem að gera það alla daga. En eins og ég segi, gott að fá þetta í andlitið í dag og við vitum hverju við megum búast.“
Subway-deild karla Haukar UMF Grindavík Mest lesið „Það er ekkert sem stoppar Remy Martin“ Sport Arna spilar með FH næstu þrjú árin Íslenski boltinn Þórsara dreymir um heimavallarrétt Körfubolti Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti Bjarki Már og félagar í góðri stöðu Handbolti PSG mætir Lyon í undanúrslitum Fótbolti Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport „Greinilega áherslubreytingar hjá dómurum varðandi ástríðu og tilfinningar“ Körfubolti Fleiri fréttir Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Þórsara dreymir um heimavallarrétt Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ „Greinilega áherslubreytingar hjá dómurum varðandi ástríðu og tilfinningar“ Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Umfjöllun: Haukar - Álftanes 91-98 | Gestirnir styrktu stöðu sína með sigri í Ólafssal Aðeins sá þriðji til að dæma yfir tvö þúsund leiki Umfjöllun og viðtöl: Grindavík-Keflavík 78-61 | Bikarmeistararnir bakaðir í Smáranum „Við erum ekkert orðnar Íslandsmeistarar þó svo að við vinnum Keflavík einu sinni“ „Ekkert leyndarmál að við ætlum að reyna við þann stóra“ Umfjöllun: Njarðvík-Haukar 84-71 | Sterkur sigur heimakvenna NFL ætlar að taka jólin frá NBA „Ekki týpan til að gefast upp“ „Öll félög á Íslandi vilja KR í efstu deild“ Valur vann stórsigur á Stykkishólmi Hætti við að hætta og varð bikarmeistari: „Súrealískt, líkt og í draumi“ KR aftur í deild þeirra bestu eftir stórsigur Um „slagsmálin“ í leik Utah og Houston: „Er ungt og leikur sér“ Þýðingarmikill leikur fyrir KR sýndur í beinni útsendingu KR-ingar geta endurheimt sæti meðal þeirra bestu í kvöld Arnar hættir að þjálfa bæði lið Stjörnunnar James Harden var bara að reyna að hafa gaman Martin drjúgur í miklivægum sigri Myndasería úr seinni bikarslag dagsins „Það verður partý um allan bæ“ Umfjöllun, viðtöl og myndir: Keflavík - Þór Ak. 89-67 | Keflavík bikarmeistari eftir stórsigur „Héldum bara áfram að berja á þeim“ „Held að ég hafi aldrei spilað fyrir framan svona marga á Íslandi“ Umfjöllun,viðtöl og myndir: Tindastóll - Keflavík 79 - 92 | Keflvíkingar bikarmeistarar í baráttuleik Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir
Umfjöllun,viðtöl og myndir: Tindastóll - Keflavík 79 - 92 | Keflvíkingar bikarmeistarar í baráttuleik
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 127-114 | Engin bikarþynnka og sigur sem telur meira en aðrir Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið sýndi klærnar nógu mikið gegn Blikum Körfubolti