Hjalti Úrsus heldur því fram að lögregla ljúgi til um blóðprufu í máli sonar hans Jakob Bjarnar skrifar 20. júlí 2021 12:53 Hjalti Úrsus Árnason og sonur hans Árni Gils í héraðsdómi. Hjalti segir málið allt hafa valdið syni sínum ómældum skaða og vænta má skaðabótamáls sem verður aldrei undir 100 milljónum. vísir/vilhelm Hjalti Úrsus Árnason segir að vænta megi skaðabótakröfu á hendur íslenska ríkinu af áður óþekktri stærðargráðu í hliðstæðum málum.
Árni Gils Hjaltason var sýknaður í Landsrétti og í Héraðsdómi eftir að hafa verið sakfelldur tvívegis í héraði. Í ágúst 2017 var Árni Gils dæmdur í fjögurra ára fangelsi í héraði fyrir að stinga annan mann í höfuðið með hnífi. Hæstiréttur ómerkti þann dom og sendi málið aftur á lægra dómsstig þar sem ekki þótti sannað að Árni Gils hafi verið sekur um það sem hann var dæmdur fyrir. Hjalti, sem hefur helgað sig þessu máli undanfarin árin, segir málareksturinn allan án fordæma. Hann segir að krafan verði aldrei undir hundrað milljónum, líklega hærri. Hann nefnir þar gæsluvarðhald, meingerð og afleiðingar sem málið hefur haft á Árna Gils. Gefur lítið fyrir svör lögreglustjóra Liður í undirbúningi Hjalta hefur verið að skoða þátt sem snýr að blóðprufu sem Hjalti segir að hafi aldrei verið tekin. Í samtali við blaðamann Vísis rekur hann það í ítarlegu máli að það hafi hreinlega ekki verið gerlegt miðað við atvikalýsingu; því er haldið fram að prufan hafi verið tekin í fangaklefa en á þeim tíma sem Árni Gils var þar ekki staddur. Dómar í héraði segir Hjalti að hafi meðal annars grundvallast á því að Árni Gils hafi verið undir áhrifum eiturlyfja, en það liggi bara ekkert fyrir um það. Hjalti hefur ítrekað krafist gagna um þetta atriði máls og nú loks hefur borist svar frá Lögreglustjóranum á Höfuðborgarsvæðinu. Hjalti gefur ekki mikið fyrir þau svör, reyndar segir hann svörin staðfesta það sem hann hefur ávallt haldið fram, að blóðprufan hafi aldrei verið tekin. Því er þó haldið fram í bréfinu, en með þeim hætti að Hjalti segir að það hljóti að vera öllum vitibornum mönnum ljóst að þetta haldi engu vatni. Gögnin týndust Svar lögreglustjóra snýr að tveimur atriðum í málinu: Annars vegar það hvort Árni Gils hafi verið yfirheyrður í nærklæðum einum fata en því er svarað til að hann hafi verið í sloppi og með teppi; myndbandsupptökur staðfesti það. Síðan er vikið að blóðsýnatökunni. Sjá má skjáskot af bréfinu sem Vísir hefur undir höndum hér neðar en þar segir meðal annars: „En niðurstaðan er sú að blóðsýni var tekið og rannsakað en pappírar varðandi hana hafa á einhvern hátt orðið viðskila við önnur gögn málsins. Það er afleitt á margan hátt en úr því verður bætt eins og nokkur möguleiki er á og kemur vonandi ekki að sök.“ Skjáskot af bréfi Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, svar sem dregist hefur úr hömlu að afgreiða en Hjalti gefur minna en ekkert fyrir þessar útskýringar. Þá er beðist velvirðingar á því hversu langan tíma hefur tekið að svara erindinu. Hjalti telur þessar skýringar broslegar, eða grátlegar öllu heldur. „Þetta er tóm lygi. Lögregla týnir gögnum? Það á ekki að vera hægt,“ segir Hjalti. Sem telur þetta smánarblett á íslensku réttarfari, að héraðsdómur hafi ekki tekið tillit til þessa þegar þar voru felldir dómar. Hjalti segir að málið liggi fyrir hjá eftirlitsnefndar með störfum lögreglu, hún fundi 27. þessa mánaðar og Hjalti geri fastlega ráð fyrir því að hún muni ávíta lögreglu fyrir vítaverð vinnubrögð. Því þetta sé ekki boðlegt. Þá hefur hann sent málið allt til umboðsmanns Alþingis til að tryggja rétta málsmeðferð í því sem snýr að kæru sem lögð verður fram innan viku.
Lögreglan Mál Árna Gils Stjórnsýsla Dómsmál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Erlent Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Innlent Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Á vesturleiðinni en ekki á hundrað og tíu Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Sanngirnisbætur, kjaraviðræður og andlát á Litla-Hrauni Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Sækjast eftir frekara gæsluvarðhaldi vegna andlátsins við Kjarnagötu Tjá sig ekkert um gang Hamraborgarrannsóknarinnar Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sjá meira