Netanjahú má ekki gefa bóluefni Ísraels Samúel Karl Ólason skrifar 2. mars 2021 13:03 Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, í leikhúsi í síðasta mánuði. Bólusetningar hafa gert ríkisstjórn landsins kleift að draga töluvert úr samkomutakmörkunum í Ísrael. AP/Ohad Zwigenberg Avichai Mandelblit, dómsmálaráðherra Ísraels, hefur varað Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra, um að hann geti ekki einn tekið ákvörðun um að gefa aukaskammta ríkisins af bóluefni til bandamanna ríkisstjórnar sinnar.
Netanjahú tilkynnti í síðustu viku að hann ætlaði að senda bóluefni til annarra ríkja, án þess að nefna þau. Fjölmiðlar í landinu hafa sagt að þar sé um að ræða ríki sem hafi stutt kröfu Ísraels um að hin umdeilda borg Jerúsalem væri höfuðborg ríkisins. Sú yfirlýsing olli miklu fjaðrafoki í Ísrael. Áætlunin var stöðvuð en þá höfðu þúsundir skammta verið sendir til Hondúras og jafnvel Tékklands, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar. Avichai Mandelblit, dómsmálaráðherra Ísraels.AP/Ariel Schalit Mandelblit sendi bréf í dag til þjóðaröryggisráðgjafa Ísraels um að forsætisráðherrann hefði átt að ráðfæra sig við aðra ráðherra vegna ákvörðunarinnar. Bréfið var opinberað af dómsmálaráðuneytinu. Þar segir dómsmálaráðherrann að hann hafi ekki verið spurður um það hvort að Netanjahú gæti samkvæmt lögum sent skammta úr landi og að hann hefði ekki fengið neinar áætlanir varðandi þessar sendingar varðandi það hverjir tækju við þeim, hvað Ísrael fengi fyrir þær og svo framvegis. Mandelblit sagði að um ríkiseigur væri að ræða og því þyrfti að fylgja lögum varðandi sölu þeirra, samkvæmt frétt Times of Israel. Lögum yrði að fylgja frá upphafi til enda og málið yrði að ræða innan utanríkis- og fjármálaráðuneyta fyrst. Netanjahú gerði samkomulag við lyfjafyrirtækið Pfizer í fyrra, sem er ekki ósvipað því að Íslendingar reyndu að gera. Það tryggði Ísraelum næga skammta af bóluefni til að bólusetja alla íbúa, eldri en sextán ára, og hét Netanjahú að bólusetningum yrði lokið fyrir lok marsmánaðar. 4,7 milljónir íbúa, af 9,3 milljónum, hafa fengið fyrri skammt bóluefnisins og 3,4 milljónir þann seinni.
Ísrael Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Sakar Íran um árás á flutningaskip Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur gengið hart fram gegn ráðamönnum í Íran á undanförnum dögum. Hann hefur sakaði Íran um árás á ísraelskt flutningaskip í Ómansflóa í síðustu viku. 1. mars 2021 10:43 Umfangsmiklar framkvæmdir við leynilega kjarnorkustöð í Ísrael Umfangsmiklar framkvæmdir standa nú yfir við leynilega kjarnorkurannsóknarstöð í Ísrael. Gervihnattamyndir sýna að framkvæmdirnar fara fram nærri gömlum kjarnakljúfi sem Ísraelar notuðu til að framleiða kjarnorkuvopn sín, sem þeir hafa aldrei formlega opinberað. 25. febrúar 2021 15:02 Netanyahu segist saklaus af ásökunum um spillingu Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segist saklaus af ásökunum um spillingu. Mál hans hefst að nýju fyrir dómi í dag en aðeins sex vikur eru þar til kjósendur ganga til þingkosninga. 8. febrúar 2021 09:50 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent Svipar til gamalla óupplýstra rána Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Innlent Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Erlent Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Innlent Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Erlent Fleiri fréttir Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sagrada Familia verði loks tilbúin árið 2034 Flóttamannaaðstoðinni meinað að koma birgðum til hrjáðra Fjórir menn fyrir dómara vegna hryðjuverkanna Simon Harris nýr leiðtogi Fine Gael Sleppti pálmasunnudagsprédikun á síðustu stundu Sjá meira
Sakar Íran um árás á flutningaskip Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur gengið hart fram gegn ráðamönnum í Íran á undanförnum dögum. Hann hefur sakaði Íran um árás á ísraelskt flutningaskip í Ómansflóa í síðustu viku. 1. mars 2021 10:43
Umfangsmiklar framkvæmdir við leynilega kjarnorkustöð í Ísrael Umfangsmiklar framkvæmdir standa nú yfir við leynilega kjarnorkurannsóknarstöð í Ísrael. Gervihnattamyndir sýna að framkvæmdirnar fara fram nærri gömlum kjarnakljúfi sem Ísraelar notuðu til að framleiða kjarnorkuvopn sín, sem þeir hafa aldrei formlega opinberað. 25. febrúar 2021 15:02
Netanyahu segist saklaus af ásökunum um spillingu Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segist saklaus af ásökunum um spillingu. Mál hans hefst að nýju fyrir dómi í dag en aðeins sex vikur eru þar til kjósendur ganga til þingkosninga. 8. febrúar 2021 09:50