Enn deilt um fjárlög og aðgerðapakka Evrópusambandsins Kjartan Kjartansson skrifar 20. nóvember 2020 11:35 Krzysztof Szczerski, starfsmannastjóri forseta Póllands. Vísir/EPA
Ungverjar og Pólverjar standa enn í vegi fyrir að fjárlagaáætlun og margmilljarða evra aðgerðapakki Evrópusambandsins vegna kórónuveirufaraldursins verði samþykktur. Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, segist búast við sátt á endanum. Ríkin tvö hafa neitað að styðja áætlunina vegna nýrra reglna sambandsins um að aðgangur að sameiginlegum sjóðum verði skilyrtur við að ríki virði undirstöður réttarríkisins. Þau eru bæði til rannsóknar sambandsins fyrir að hafa grafið undan sjálfstæði dómstóla, fjölmiðla og frjálsra félagasamtaka. Tugir milljarða evra eru undir fyrir ríkin tvö. Afstaða þeirra nú mun líklega tefja aðgerðir til þess að rétta við efnahag aðildarríkjanna í kreppunni sem hefur fylgt kórónuveirufaraldrinum, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Orban sagði í dag að viðræður héldu áfram og á endanum verði komist að niðurstöðu. Nokkrir kostir til þess að leysa úr stöðunni sem þóknist Ungverjalandi og Póllandi séu í boði. Skýrði hann ekki frekar hvað gæti falist í þeim kostum. Minni sáttatónn var í fulltrúa pólsku ríkisstjórnarinnar í dag. Krzysztof Szczerski, starfsmannastjóri forseta Póllands, sagði landið hafa fullan rétt á því að neita að fallast á það sem það teldi rangt. „Við höfum rétt á að sækjast eftir og krefjast nýrrar málamiðlunar,“ sagði hann við pólska ríkisútvarpið TVP info.
Evrópusambandið Pólland Ungverjaland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Ungverjar og Pólverjar gætu stöðvað fjárlög ESB Ráðamenn í Ungverjalandi og Póllandi hóta því að beita neitunarvaldi til að stöðva fjárlagaáætlun Evrópusambandsins og aðgerðaáætlun gegn kórónuveirufaraldrinum ef virðing fyrir réttarríkinu verður gert að skilyrði fyrir fjárveitingum. 16. nóvember 2020 13:39 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Sjá meira
Ungverjar og Pólverjar gætu stöðvað fjárlög ESB Ráðamenn í Ungverjalandi og Póllandi hóta því að beita neitunarvaldi til að stöðva fjárlagaáætlun Evrópusambandsins og aðgerðaáætlun gegn kórónuveirufaraldrinum ef virðing fyrir réttarríkinu verður gert að skilyrði fyrir fjárveitingum. 16. nóvember 2020 13:39